Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Page 29

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Page 29
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 29 veigamikil eða öllu heldur auðveldari í dag með öllum þeim tækjum sem við höfum yfir að ráða, þá er nauð- synlegt að þekkja grunninn og standa ekki ráðalaus, þótt tæknin bregðist. Því er rétt að hafa í huga spakmælið „að fortíð skal hyggja ef framtíð skal byggja.“ Ég tel að gildi sögunnar í þessu glæsilega húsi, sem hýst hefur þessar menntastofnanir í rúm 50 ár, sé mikilvægur þáttur í náminu. En félagsskapurinn og vináttu- tengslin sem þarna sköpuðust skipta líka miklu þegar ég minnist skólans. Við héldum töluvert hópinn sex borð- félagar í mötuneytinu, ungir menn og lífsglaðir, sem fórum þó nokkuð á böll til að skemmta okkur og að sjálf- sögðu að njóta nálægðar við fallegar stúlkur. Einhverra hluta vegna þróuð- ust mál þannig að við fórurn að venja komur okkar í gamla Kennaraskól- ann. Þar voru þá dansleikir þar sem okkur var vel tekið og þar voru ódýr- ar og góðar skemmtanir. En um vorið höfðu þrír félagar mínir fundið konu- efnið sitt í Kennaraskólanum. Enda þótt ég hafi verið það seinþroska að mér hlotnaðist ekki að finna mér konuefni, á þessum tíma, þá líst mér vel á þetta samstarf og samvinnu Stýrimanna- og Vélskólans við Kenn- araháskóla íslands (KHÍ). Enda er það í samræmi við nýlegt skipulag, þar sem gert er ráð fyrir sameiginlegri uppbyggingu þessara skóla. Um þetta skipulag er sátt, og vonandi kemur það ekki að sök þótt í áranna rás sé búið að sneiða talsvert af þeirri glæsi- legu lóð, sem borgarstjórinn í Reykja- vík gaf undir sjómannamenntunina á sínum tíma og eins skilst mér að eitt- hvað hafi einnig verið klipið af lóð Kennaraháskólans." Trúði ekki niínuin eigin eyrum „Mér fór sem fleirum að ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin eyrum þeg- ar ég heyrði af þessari svonefndu „hugmynd" um að flytja skólana úr hinu virðulega húsi sínu. Gegn þeirri hugmynd eru svo margar og augljósar ástæður að það ætti ekki að þurfa að telja þær upp. Þetta hús heitir „Sjó- mannaskólinn í Reykjavík“ og það var byggt til að hýsa þá menntun sem þar fer fram. Mér sýnist röksemdirnar fyrir hugmyndinni um að flytja skól- ana vera hálfgerðar sjónhverfingar, og eitt er víst — það vottar hvergi fyrir þeim metnaði sem var fyrir hendi þegar húsið var reist. Þá vildu menn sýna og sanna að íslendingar gerðu myndarlega við sjómannastéttina, eins og vera ber hjá þjóð sem á allt sitt undir siglingum og fiskveiðum. Þessi furðulega hugmynd kom strax af stað ákaflega miklu uppnámi og heyrðist jafnvel talað um að skipin mundu sigla í land til að mótmæla slíkri uppákomu! Það að ætla að flytja þessar menntastofnanir sjó- manna og meðhöndla þær eins og ein- hverja niðursetninga, verður ekki gert án þess að til mikilla mótmæla komi. Það sýndu gamlir nemendur og vel- unnarar skólanna, sem gengu fram fyrir skjöldu í vetrarbyrjun og stofn- uðu Hollvinasamtök Sjómannaskól- ans.“ Skelegg ávörp og baráttu- kveðjur „Það mun hafa verið um mánaða- mótin október-nóvember að undir- búningsnefnd vegna stofnunar sam- takanna tók til starfa. Vann hún ötul- lega og var stofnfundur haldinn þann 26. nóvember sl. í hátíðarsal Sjó- mannaskólans. Þar var saman komið fjölmenni, sem sýndi mikla samstöðu um að mótmæla þessum hugmyndum. Þar voru samtökunum sett lög, kosin 5 manna stjóm og fulltrúaráð sem í sitja 21 maður. Mikill einhugur ríkti á fundinum og var mönnum talsvert niðri fyrir. Skelegg ávörp voru flutt og margar baráttukveðjur bárust. í greinargerð sem samþykkt var á fund- inum segir að undir engum kringum- stæðum megi það gerast að Sjó- mannaskólanum verði ráðstafað lil annarrar starfsemi en þar fer nú fram, nema um það ríki full samstaða. Frá því er stofnfundurinn var haldinn hef- ur félögum samtakanna fjölgað jafnt og þétt og ekki hefur linnt mótmælum frá stéttarfélögum sjómanna og frá fólki úr öðrum starfsgreinum. Ég held að þessi hugmynd eigi sér fáa formæl- endur. í stjórn völdust auk mín þeir Guð- mundur Ibsen varaformaður, Georg Árnason gjaldkeri, Unnþór Torfason ritari og Gunnar Freyr Hafsteinsson meðstjórnandi. Tveir þeir síðast- nefndu eru fulltrúar nemendafélaga skólanna. Þann 14. janúar áttum við fund með menntamálaráðherra sem gaf sér góðan tíma til að ræða við okkur. Fannst mér hann taka okkur vel og sýna þessu máli mikinn áhuga. Það kom fram í viðræðunum að ráð- herra kvaðst ekki mundu ganga gegn vilja manna og það þótti okkur afar mikilsvert að heyra. Við vonumst líka til að þetta mál megi ræða og vinna á rólegu nótunum og höfum reynt að draga úr mönnum að fylgja því eftir með hávaða. Fundurinn sýndi að við höfum meðbyr þar sem ráðherrann er, og með honum viljum við starfa að lausn málsins. Stjórn og fulltrúaráð komu saman þann 26. janúar, þar sem ráðinu var greint frá fundinum sem við áttum með ráðherra. Þar var samþykkt að bíða niðurstöðu starfsnefndar þeirrar sem vinnur að skoðun valkosta á hús- næðismálum skólanna, en áréttað að flutningur þeirra í Höfðabakka 9 geti ekki verið ásættanleg lausn. Um leið var ráðherra þakkaður samstarfsvilji hans og lýst vonum um farsæla lausn þessara mála. Sú niðurstaða sem þróast hefur með hækkandi sól er að farið er að vinna í samræmi við samþykkt „Deiliskipulag fyrir Kennaraháskóla Islands og Sjómannaskóla íslands“. Það er skipulag, sem flestir eru sáttir við. Því tel ég að við hjá Hollvina- samtökum Sjómannaskólans, getum þokkalega við unað. Hinsvegar hefur þessi uppákoma í haust gert það að verkum að menn eru tortryggnir og vilja vera á varðbergi.“ Leggja þarf áherslu á stjórn- unarþáttinn „Mér fannst að þrátt fyrir að ég hafi reynt að fylgjast með menntunarmál- um sjómanna, þá væri ég illa í stakk búinn til þess að verða við þeirri beiðni að ég gerðist formaður samtak- anna. En hvenær eru menn tilbúnir, það þýðir ekki annað en takast á við hlutina, einhver verður að sinna þessu og með jafn breiðan og traustan hóp að baki, eins og hér er, verðum við að vera bjartsýn. Það er bæði fróðlegt og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.