Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Síða 30

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Síða 30
30 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ / mörg horn er að líta hjá þjónustustjóra Hafnarfjarðarhafnar. Hafnsögubáturinn Þróttur í baksýn að þjónusta skip. (Ljósm.: Sjómdbl. AM). gaman að takast á við svona verkefni. Með því gefst tækifæri til að kynnast nánar þessum málum og ekki hvað síst kann að bjóðast færi á að eiga þátt í að gera góða hluti. Þeim skólum sem hér um ræðir er annars vegar ætlað að mennta fólk til að sinna tæknimálun- um um borð í skipunum okkar og hins vegar siglingafræði- og stjórnunar- þættinum. Eg tel að þróun þessara mála hér á landi, sérstaklega þó hvað fiskiskipin varðar, sýni að vel hafi til tekist, og skólarnir hafi skilað góðu verki í að mennta fólk til þessara starfa. Þar ber hæst hin glæsilegu og vel búnu skip, sem sækja sífellt lengra og koma að landi með stöðugt meiri og verðmæt- ari afla. En það sem sjómannastéttina vantar er ef til vill kynning á mikil- vægi þessara starfa meðal þjóðarinn- ar. í dag virðast flestir hlutir byggjast á áróðri, auglýsingatækni og oft á tíð- um á skrumi. Getur verið að þar sé þáttur sem vantar í stundaskrá þessara skóla! Ég er samt vantrúaður, hef talið sjómönnum það til gildis að vera að miklu leyti lausa við slíka iðju. En þegar að athöfnum kemur þá gerast hlutirnir ekki af sjálfu sér, það er reynsla sem sjómenn hafa kynnst í átökum sínum við Ægi konung. Hins- vegar tel ég að leggja þurfi meiri áherslu á að hér er verið að mennta menn sem eiga að stjórna vinnu og dýrum tækjum, oft við afar erfiðar að- stæður, þar sem reynir á þekkingu þeirra tii hins ítrasta. Þeir eiga að stjórna vinnu og öllum rekstri um borð í því fyrirtæki sem skip á fullri ferð er. Og þetta er hættulegur vinnu- staður, hvort sem við ræðum um fiski- skipin eða vöruflutningaskipin. Um það vitna tölur um slysatíðni á sjó. Stóru skuttogararnir eru fljótandi verksmiðjur og á vöruflutningaskip- unum þarf að kunna skil á eðli vör- unnar, svo hún komist heil í höfn.“ Auka þarf möguleika skip- stjórnarmanna á störfum í landi „Að sjálfsögðu er alltaf spurning hvort menntun þessara skóla hafi fylgt kröfum tímans. Ég tel að svo hafi verið, þótt alltaf megi gera betur. Til dæmis hvað Stýrimannaskólann varðar tel ég að námið þurfi að gefa nemendum betri og meiri möguleika á störfum í landi. Það er staðreynd að stór hluti nemenda þarf, breyttra að- stæðna vegna, að yfirgefa þetta sér- svið sitt og fara í land. Orsakir eru að hluta til hin erfiðu starfsskilyrði á sjónum. Þarna skilur töluvert á milli hjá skólunum. Vélstjórar eiga alls staðar greiðan aðgang að störfum í landi, sem best menntaða tæknifólk Iandsins. Það er kannski þessi þáttur sem vegur hvað þyngst, þegar að að- sókninni kemur. Því tel ég mikilvægt að stuðlað verði að því að skipstjórn- armenntunin gefi sömu möguleika og vélstjórnarmennlunin. Fyrir strjálbýlt eyland eins og land- ið okkar er, þá eru samgöngur á sjó ásamt aðgangi að auðlindinni, fiski- miðunum við landið, lykillinn að tryggum efnahag. Því verðum við að viðurkenna þörfina á að fá gott fólk til þess að stjórna vinnunni um borð í skipunum. Til þess að svo megi verða þarf að tryggja því unga fólki, sem velur þessa starfgrein, að það lendi ekki í blindgötu með sína menntun, heldur eiga möguleika á að breyta til,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.