Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Síða 39
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
39
skipstjórnarmanna í fjarskiptum sé
fullnægt, því á næsta ári verður það
sett sem skilyrði fyrir því að menn
haldi réttindum sínum. Margir skip-
stjórar sem sigla erlendum skipum
hafa komið heim til íslands til þess að
taka þessi námskeið við skólann, þar
á meðal einn alla leið frá Chile.
Mikill áhugi er á að koma á háseta-
fræðslu, en nú er það orðið svo í N-
Evrópu að ætlast er til að háseti geti
sinnt störfum bæði á dekki og í vél. I
Vélskóla íslands er komin upp ágæt
aðstaða fyrir smíðar og málmsuðu í
vélahúsi skólans, og kostaði sá flutn-
ingur á sínum tíma um 30 milljónir
króna. Þar sem sú kennsla var áður í
ófullnægjandi húsnæði fyrir málm-
smíðar og logsuðu í kjallara Sjó-
mannaskólans (kafbáti) er nú komin
aðstaða til að kenna hefðbundna sjó-
vinnu eins og netabætingar, splæs og
gagnlega hnúta. í nágrannalöndunum
er kunnáttu í þessum faggreinum,
ekki síst í notkun ýmissa verkfæra við
járnsmíði, málmsuðu, stjórn krana
o.fl., krafist af fullgildum háseta á ný-
tísku kaupskipum.
Síðastliðið haust buðum við upp á
námskeið í splæsingum og netabæt-
ingum, en þátttaka var ekki jafn góð
og við væntum. Ég veit þó fyrir víst
að þetta er kennsla sem er mög þörf
og því eiga ntenn eftir að átta sig á.“
Með tæknivæddustu skóluin í
Reykjavík
„Stýrimannaskólinn og Vélskóli
íslands eru nteð tæknivæddustu skól-
um í Reykjavík, enda verða þeir að
rísa undir þeim kröfum sem alþjóð-
legar skuldbindingar er við íslending-
ar höfum tekist á herðar gera ráð fyr-
•r. Sem fullvalda ríki, sem stendur við
undirritun alþjóðasamninga og vill
Iryggja öryggi sæfarenda, verðum við
að ábyrgjast að faggreinarnar séu í
lagi og þar má ekki eiga sér stað neitt
íúsk. Tækjakennslan er þess vegna
sérstaklega mikilvæg og afar urn-
tangsmikil. í Stýrimannaskólanum er
henni skipt í ratsjárdeild, fiskileitar-
°g dýptarmæladeild ásamt sjálfstýr-
■ngu, deild staðsetningartækja (GPS)
og áttavita (gíró- og segulkompásar),
Deiliskipulag fyrír Kennaraháskóla Islands og Sjómannaskóla íslands sam-
þykkt íborgarráði 10. september 1996. A miðri mynd eru tveir hringlaga vatns-
tankar Vatnsveitu Reykjavíkur, norðan við Háteigsveg. Austan við tankana er
gert ráð fyrir sameiginlegri félagsmiðstöð (hugsuð sem svipuð stofhun og Fé-
lagsmiðstöð stúdenta við Hringtorg) og mötuneyti. Vestan við Félagsmiðstöð-
ina er torg í sjónrœnum tengslum við aðalinngang að Sjómannaskólanum og
KHl. Aðalbygging og sú stœrsta á lóð KHÍ sunnan við Háteigsveg er nýbygg-
ing fjrir bókasafn, gagnasmiðju og kennslu, austan við núverandi byggingar
KHI. Efst á myndinni er Sjómannaskólinn og til htegri við skólann, beint norð-
ur af Félagsmiðstöðinni, er vélahús Vélskóla íslands og sameiginleg bygging
fyrir herma (samlíkja) (vélaherma, siglinga- og fiskveiðisamlíki). Þar er áform-
uð sérstök hermamiðstöð. Vestast á lóð Sjómannaskólcms, austan við Háteigs-
kirkju, er gert ráðfyrir tveimur tveggja hœða húsum fyrir 22 íbúðir nemenda,
sem eiga að vera 50-60fermetrar liver íbúð. A 1. hæð nyrðra hússins erfyrir-
hugað dagheimili. Arkitektarnir Ormar Þór Guðmundsson og Garðar Guðna-
son unnu deiliskipulagið í nánu samstarfi við nefnd sem var skipuð í febrúar
1995. 1 nefndinni voru skólcimeistarar Sjómannaskólans, rektor og fjármála-
stjóri Kennaraháskóla Islands og Hákon Torfason deildarstjóri í menntamála-
ráðuneytinu.