Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Side 42
42
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
nemendur geti stundað vélstjóra- og
skipstjórnarnám samtímis og aflað sér
bæði réttinda til skipstjórnar og vél-
stjórnar, en víða erlendis færist í vöxt
að menn afli sér réttinda á báðum
þessum sviðum.
Þá er sjálfsagt að koma að því að
við viljum gjarna geta boðið upp á
braut sem veitti rétt til inngöngu í há-
skóla. Nýlega er komin út skýrsla
nefndar sem Baldur Gíslason,
kennslustjóri við Fjölbrautaskólann í
Breiðholti og starfsmaður mennta-
málaráðuneytisins, er formaður fyrir.
Þótt hún fjalli einkum um þær breyt-
ingar sem eru að verða í Stýrimanna-
skólanum, þá kemur þar fram vilji til
þess að sett verði upp sérstök stúd-
entabraut Stýrimannaskólans í
Reykjavík og Vélskóla íslands. Þar
með ættu nemendur okkar kost á há-
skólanámi þegar þeir útskrifast héðan.
Að vísu hafa ntenn þegar getað kom-
ist þessa leið, til dæmis héðan frá
okkur, og hafa það verið nemendur
með mjög góðan námsárangur. En
víst væri betra ef við gælum boðið
upp á stúdentsbraut, því efalaust yrði
það til þess að auka aðsókn, og námið
hér er ágæt undirstaða fyrir ýmislegt
háskólanám, til dæmis verkfræði og
tæknifræði.“
Menntunin löguð að kröfum
STCW
„Það sem annars hefur borið hæst í
skólastarfinu að undanfömu er að við
höfum verið að laga menntunina bet-
ur að kröfum Alþjóðasiglingamála-
stofnunarinnar (STCW). Til dæmis er
það í samræmi við þessar kröfur að
við höfum nú aukið kennslu í slysa-
vörnum, sjúkrahjálp og meðferð
lytjakistu, en í þeim efnum er nú kraf-
ist sömu kunnáttu hjá vélstjórum og
hjá skipstjórnarmönnum, sem í svo
mörgu öðru. Einnig er aukið við
kennslu í stöðugleika og byggingu
skipa.
Þá er sífellt verið að vinna í því að
bæta kennsluefnið sjálft, bækur og
annað. Þegar kemur að ýmsum sér-
áföngum okkar sem eru tiltölulega fá-
mennir, hefur okkur reynst dýrt að út-
búa góð kennslugögn. Við viljum
gjarna hafa kennslugögnin á íslensku,
enda finnum við að þá gagnast þau
„í framtíðinni mun símenntun verða æ nauðsynlegrí þáttur vélstjórnarnáms-
ins, “ segir Björgvin Þór. (Ljósm.: Sjómdbl. AM).
er fólk í auknum mæli að uppgötva og
notfæra sér. En eigi að síður álítum
við mjög mikilvægt að boðið sé upp á
allt nám hér við Vélskóla íslands, það
er að segja frá gunnskóla og til hæstu
réttinda. Þannig höfum við betri mót-
tökuskilyrði, ef svo má segja, gagn-
vart því mjög svo mismunandi námi
sem menn hafa að baki þegar þeir
hefja nám í Vélskóia íslands.
Rétt er að geta um að nú hefur ver-
ið tekin ákvörðun um að Stýrimanna-
skólinn í Reykjavík fari einnig yfir í
áfangakerfi, en hann hefur verið með
bekkjakerfi til þessa. Við breytinguna
munu skólarnir auka samstarf sitt
mikið. Það sem staðið hefur í vegi
fyrir nánari samvinnu og samkennslu
er einmitt það að við höfum verið
með mismunandi kerfi. Nú verður
þessu fyrra misræmi rutt úr vegi og
við munum geta kennt fjölda greina
saman, einkum almennar greinar.
Einnig skapar þetta möguleika á að