Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Síða 45
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
45
en þau hlýtur hann ekki nema hann sé
orðinn vélfræðingur, þ.e. hafi lokið
fjórða stigi og sveinsprófi í málmiðn-
aðargrein. Þá hefur hann öðlast rétt-
indi á 1500 kW vél og þar yfir, sam-
kvæmt íslenskum atvinnuréttindalög-
um. Af hálfu LÍÚ hefur verið tals-
verður þrýstingur á að hækka þetta
mark. Menn verða að hafa hugfast að
góður tæknimaður eykur öryggi bæði
skips og áhafnar og stuðlar að aukinni
framleiðni og bættum rekstri. Einnig
þarf rnikla handverksþekkingu, en
hún hefur nú færst í það horf að auk
smíðakunnáttu er mikilvægt að vél-
stjóri geti tekið í sundur, sett saman
og byggt upp vélar. Auk þess veitir
stýrt viðhald ómælt öryggi.“
Endurnýjunar þörf á þriggja
til fjögurra ára fresti
„Ég vil minnast á enn einn lið í
náminu hjá okkur sem farið hefur
vaxandi, en sá liður er stýrt viðhald.
Þá er bæði um að ræða tímastýrt við-
liald og ástandsstýrt viðhald, en í
fyrra tilfellinu er skipt um hlut eftir
tiltekinn tíma og í því síðara er skipt
um hann þegar athugun leiðir í ljós að
hann hefur lokið sínu hlutverki og bil-
un líkleg innan tíðar. í stýrðu viðhaldi
gegna tölvur miklu hlutverki sem
verkfæri, svo og í lagerfærslu og
öðru. Til þessa eru fyrir hendi ákveð-
in forrit. Ýmis kennsla hér gengur
líka í síauknum mæli út á það að
kenna mönnum að nýta sér tölvurnar
og má þar nefna teiknikennsluna, vél-
fræðikennsluna kælitæknikennsluna,
rafmagnsfræðikennsluna og hermana,
sem stjórnað er af tölvum. Verulegu
fjármagni hefur verið varið til þess að
endurnýja þennan tölvukost á undan-
förnum árum, en hann þarf að endur-
nýja á þriggja til tjögurra ára fresti.
Þetta kernur ekki til af sliti, heldur
koma jafnt og þétt fram stærri og
viðameiri forrit sem útheimta stærri
tölvur með meira minni og meiri
vinnsluhraða. Ég tel að við höfum
gert okkar ítrasta til þess að fylgja
þessari þróun eftir, en takmarkað fjár-
magn hefur skorið okkur þröngan
stakk.
Fyrir um það bil fjórum árum
byggðum við upp mjög fullkomið
kælikerfi sem einmitt er tölvustýrt og
veitti Danfoss okkur mikilsverðan
stuðning við það, svo og vélsmiðjan
Héðinn og kælismiðjan Frost. Þessi
búnaður hefur nýst okkur ákaflega vel
í kælitæknikennslunni, ekki síst þeim
hluta sem snýr að stýringu og still-
ingu, eða „reglun,“ eins og það kallast
einnig. Þetta er og mikilsverður liður
í verklegu kennslunni. Hér eru aðeins
fáein fyrirtæki nefnd af þeim fjöl-
mörgu sem hafa veitt okkur stuðning
við að byggja upp verklegu kennsluna
í skólanum. Érum við starfsmenn
skólans mjög þakklátir þeim fyrir-
tækjum sem rétt hafa okkur hjálpar-
hönd.“
Hér viljum við helst vera
„Ég minntist á í upphafi máls míns
að hugarfarsbreyting þurfi að koma til
gagnvart sjómannamenntuninni og á
það einnig við um ráðamenn. Við
þurfum á tjármunum að halda en
skólarnir hér hafa því miður lengi ver-
ið í fjársvelti. Satt að segja skilur eng-
inn ástæðuna og þá síst aðrar þjóðir,
sem vita eins og allir að við Islending-
ar lifum fyrst og fremst á fiski. Svo er
rætt um það á tyllidögum að auka
þurl'i menntun sjómanna og verk-
menntun almennt og borið lof á stétt
þeirra á Sjómannadaginn. Mál er til
komið að menn fari að sýna að hugur
fylgi máli.
Ég vil enda þetta spjall á að óska
öllum sjómönnum til hamingju á 60
ára afmæli Sjómannadagsins, svo og
öðrum velunnurum skólans. Og ekki
má ég gleyma Hollvinasamtökum
Sjómannaskóla íslands, sem hafa
veitt okkur ómetanlegan stuðning í
baráttunni fyrir því að við fáum að
vera áfram hér í húsi Sjómannaskóla
Islands. Hér viljum við helst vera og
sjá námið byggjast upp hér, eins og til
var ætlast þegar Sjómannaskólinn var
reistur fyrir ríflega 50 árum. Stuðn-
ingur Hollvinasamtakanna, sem gert
hafa þetta að helsta baráttumáli sínu,
mun hafa sitt að segja til þess að svo
megi verða, okkur, sjómannastéttinni
og allri íslensku þjóðinni til heilla.“
AM
Sendum öllum íslensfunn
sjó/77önnum árnaáaróskir ®
d fiátíðisdegi þeirra r\ 11 1 L*J 1 W.
íslenskar sjávarafurðir hf.