Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Page 105
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
105
inu, leit á vélsímana og kinkaði kolli
þegar hann sá að þeir stóðu báðir á
fullri ferð áfram. Hann tók nú við
stýrinu, en sagði mér að fara aftur á
um leið og hægt væri að athuga
skemmdir, en fara varlega.
Á bátadekkinu gaf heldur en ekki á
að líta: Allt var farið sem farið gat af
lausum munum. Lífbáturinn með öll-
um búnaði og björgunarflekinn voru
gjörsamlega horfnir, öll stög og stang-
ir af davíðunum höfðu slitnað. En all-
ar hurðir höfðu haldið og enginn sjór
komist inn í skipið. Eftir að davíðurn-
ar og annað lauslegt hafði verið bund-
ið var haldið áfram til Isafjarðar.
Nokkrum árum seinna hafa tvö
skip farist á sömu slóðum og sá at-
burður gerðist sem hér er sagt frá.
Fyrst fórst vitaskipið Hermóður undir
stjórn skólabróður míns, Olafs Jó-
hannessonar, og seinna nótaskipið
Stapafell. Bæði þessi skip fundust á
dýptarmælum síðar og bæði virðast
þau hafa farið með sama hætti, að þau
hafa kollstungist á á einni báru, án
þess að koma frá sér minnstu orð-
sendingu eða geta nýtt sér góðan
björgunarbúnað sem bæði voru búin.
Eg hef alltaf verið sannfærður um
að það var lengdin á Richard og flot-
magnið í stóru skápunum undir hval-
baknum sem komu í veg fyrir að hann
endastyngist út af Stafnesi þessa nótt
og átti marga farsæla ferð ófarna. Mér
fannst ég alltaf fljóta á farsælum fjöl-
um öll þau ár sem ég hafði hann und-
ir fótunum.
Ég fór yfir þrjátíu ferðir með fisk
til Englands á stríðsárunum og stund-
um var umhverfið ömurlegt þegar
siglt var um svæði þar sem skip höfðu
verið skotin niður og allt var flóandi í
rekaldi og hörð fyrirmæli frá her-
stjórninni urn að skipta sér ekki af
neinu. Þeir sæu sjálfir um það sem
gera þyrfti. Því var það að þótt við
slyppum alltaf sjálfir, þá sáum við
margt og vissum af ntörgu sem vona
ber að komandi kynslóðir íslenskra
sjómanna þurfi ekki að sjá.
Sendum ölium ísLensfium
sjómönnum árnaðarósfdr á
íiáííðisdegi jieirra
Alþýðusamband íslands
Tímaritið Vinnan
Sendum öLLum ísLenskum
sjómönnum árnaðarósfar á
fiátíðisdeiji þeirra
Vélstjórafélag íslands
Sendum öllum sjómönnum árnaðaróskir
á íiátíSisdegi þeirra
Sjómannasamband Islands
Borgartúni 18, 105 Reykjavík