Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Síða 109
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
109
Tilkynningaskyldan er 30 ára á þessu ári. Á afmœlisárinu verður tekið upp
sjálfvirkt keifi með sendingarbúnað í hverju skipi sem sendirfrá sér merki á 15
mínútna fresti. Hægt erað grípa til tafarlausra aðgerða efmerkin hœtta að ber-
ast og verður hér um hreina byltingu að rœðafrá því sem var. Hér er Arni Sig-
urbjömsson á vakt og fylgist með skipum á hafi úti við landið. (Ljósm.:
Sjómdbl. AM)
Stóra málið —
fullkomið öryggiskerfi
„Þá er að geta um það sem segja
má að sé „stóra málið“ hjá okkur, en
þar er um að ræða hugmynd um ör-
yggiskerfi fyrir sjómenn og er mark-
miðið með því að koma á ákveðnu
skipulagi hvað varðar vinnubrögð og
meðferð á öryggismálum um borð í
bátum og skipum. Þessu kerfi er ætl-
að að uppfylla öll íslensk lög og regl-
ur um öryggi sjómanna, svo og al-
þjóðlegar kröfur sem íslensk stjórn-
völd hafa viðurkennt. Kerfinu er ætl-
að að taka mið af viðurkenndum, al-
þjóðlegum öryggiskerfum og auka
innra öryggiseftirlit áhafna og út-
gerða. Það skal vera samræmt, þannig
að sömu grundvallarvinnureglur gildi
á öllum skipum og bátum hvað varð-
ar ábyrgð og verkaskiptingu. Það skal
innihalda lýsingar á vinnuferli allra
helstu verkþátta um borð í hverjum
báti og skipi og tryggja skipulega
fræðslu og skráningu öryggiseftirlits.
Loks skal í því fólgin staðfesting á því
að öryggisreglur séu haldnar og að
gripið hal'i verið til þeirra úrbóta sem
þörf kann að hafa verið á. Kerfið skal
reyna í tíu til luttugu skipum og bát-
um af mismunandi stærðum og gerð-
um og er aðalmarkmiðið með þessu
auðvitað að gera sjómennskuna ör-
uggari og koma í veg fyrir slys á
mönnum og tjón á verðmætum.
Þessa hugmynd höfum við kynnt
fyrir sjómannasamtökunum og út-
gerðarmönnum, sem og þingmanna-
nefnd sem nú vinnur að tillögugerð
um öryggismál sjómanna. Hefur
þessu alls staðar verið vel tekið. Eins
og að ofan segir verður þetta kerii
mjög aðgengilegt og samræmt, þar
sem sömu vinnureglur verða nú við-
hafðar um borð í öllum skipum og
bátum. Þannig geta sjómenn verið
vissir um að ef þeir skipta um skips-
rúm, þá ganga þeir að sama kerfinu
annars staðar. Höfum við óskað eftir
aðstoð frá Háskóla íslands og sam-
mælst við skólann um að hann aðstoði
Slysavarnafélagið við að móta þetta
kerfi hér á landi. Þá hefur verið sótt
um styrk frá Rannsóknasjóði rfkisins
vegna þessa og höfum fengið jákvæð
viðbrögð þaðan. Ætti þessi vinna að
geta farið í gang á næstu mánuðum.
Og auðvitað er grundvallaratriði að
vinnan að þessu fari fram í góðri sam-
vinnu við sjómenn og útvegsmenn.11
Björgunarbátum SVFÍ fjölgar
„Mikil aukning hefur átt sér stað í
rekstri á björgunarbátum SVFI á síð-
asta ári. Fyrir tveimur árum vorum
við með tvo stóra björgunarbáta í rek-
stri, sem reknir voru af björgunarbáta-
sjóði okkar, auk margra srnærri björg-
unarbáta sem eru í eigu björgunar-
sveita víðs vegar um land. En nú hel'-
ur fjölgað í flota björgunarskipa sem
eru í rekstri hjá höfuðstöðvum lélags-
ins og reknir eru af björgunarbáta-
sjóðnum. Sjóðurinn er fjámagnaður al'
Happdrætti SVFÍ og öðrum framlög-
um. Verða bátarnir í sumar orðnir átta:
Þeir eru í Sandgerði, Reykjavík, Rifi,
ísafirði, Siglufirði, Raufarhöfn, Nes-
kaupstað og Grindavfk. Þrjú þessara
skipa eru þýsk, þrjú eru hollensk og
hin eru bresk. Þetta eru mjög myndar-
leg skip sem byggð hafa verið af syst-
urfélögum SVFI í þessum löndum og
eru sérhönnuð til björgunarverkefna á
grundvelli langrar reynslu. Að vísu
eru þau ekki ný, en líta mjög vel út og
rekstrarkostnaður þeirra á að verða
viðráðanlegur, þótt hann aukist með
þessari fjölgun. Meðan skipin voru
aðeins tvö var kostnaður um 2-5
milljónir ári, en nú er útlit fyrir að
hann aukist í um 20 milljónir. En
skipin skapa mikið öryggi fyrir sjó-
menn á þeim stöðum þar sem þau eru
— og ekki má gleyma hve miklu
óhultari björgunarmennirnir sjálfir
eru á slíkunt farkostum. A bátum sem
þessum komast þeir líka að ýmsum
stöðum á landi í vondum vetrarverð-
um sem varla er viðlit að komast að
nema sjóleiðina og þá aðeins á sér-
hönnuðum björgunarskipum. Því rétt-
lætir hið fjölbreytta notagildi rekstrar-
kostnaðinn.
Neyðarskýli félagsins eru og hluti
þess sem unnið hefur verið í þágu ör-
yggis sjómanna allt frá stofnun fé-
lagsins, en þau eru nú um 80 talsins.
Þau eru staðsett úti við ströndina á
stöðum sem erfitt hefur verið að kom-
ast að og oft í eyðibyggð eða á fjall-
vegum. Skýlin eru mjög mikið notuð
og má sjá það af því sem skráð er í
gestabækur í þeim, en ferðamenn hal'a
nýtt sér skýlin mikið og höfum við
stundum gagnrýnt það, þar sem þetta
eru neyðarskýli. En skýlin koma líka
mikið að notum á vetrum og eiga þar
hlut að máli ferðamenn, björgunar-
sveitarmenn og þeir seni sinna verða
brýnum erindum í vondum veðrum
fjarri mannabyggð. í slíkum tilvikum