Eimreiðin - 01.01.1925, Blaðsíða 16
12
EIMREIÐIN ÞRÍTUG
EIMREIÐIN
tími enn ekki langur, sem Eimr. hefur verið í höndum nýja
húsbóndans. Hann hefur verið að þreifa fyrir sér og hefur
þegar sannfærst um það, að Eimr. á enn langa lífdaga fram-
undan, sé henni haldið í rétt horf. Kaupendunum hefur fjölgað
og þær mörgu vinsemdarkveðjur, sem ritstj. hefur borist í
bréfum víðsvegar að, hafa ásamt öðru fleiru sannfært hann
um, að Eimr. getur mörgu góðu til leiðar komið, ef vel
er á haldið.
Carlyle segir á einum stað í riti sínu Sartor
Resartus, að blaðamennirnir séu hinir sönnu
konungar og klerkavöld samtíðarinnar. Hafi
þetta verið rétt hjá honum fyrir nær heilli öld, hvað mætti
þá segja nú, þegar blöðin svo að segja móta hvern einstakl-
ing þjóðfélagsins að meiru eða minna leyti? Það væri fróð-
legt að fá sem víðast að svör við þeirri spurningu, hvaða
tæki væri áhrifaríkast í opinberu lífi þjóðfélagsins. Flestir
mundu ef til vill telja, að eðlilegast væri að benda á kirkjuna
sem áhrifaríkasta tækið. En væri það sannasta svarið? Tök-
um vora eigin íslenzku þjóðkirkju. Hvar gætir áhrifa hennar
mest? Ekki í stjórnmálum. Blöðin túlka þau. Ekki í heil-
brigðismálum. Læknarnir sjá um þau. Ekki í fátækramálum.
Sveitastjórnir og ríkið sjá um þau. En í trúmálum? ]ú, vissu-
lega gætir áhrifa kirkjunnar í trúmálum, og jafnvel að ein-
hverju leyti í hinum málunum líka. En kyndlum trúar er
haldið á lofti víðar en innan vébanda þjóðkirkjunnar. Og
blöðin láta sig varða öll þessi mál og mörg fleiri.
Áhrif þau, sem blöðin hafa á hugsunarhátt og
skoðanir fjöldans, eru geysileg, en því miður
ekki ætíð að sama skapi heillavænleg. Blaða-
tilfinnanlega virðingu fyrir starfi sínu. Á þeim
hvílir þyngri ábyrgð en á flestum öðrum meðlimum þjóðfé-
lagsins, af þeirri einföldu ástæðu, að þeir ná allra manna
bezt til almennings með skoðanir sínar. Þeir eru öllum öðr-
um betur staddir með að fræða, leiðbeina og glæða hið góða
með mönnum, skipa þeim í samstarfandi heildir til þjóðþrifa.
En þeir standa líka allra manna bezt að vígi til þess að
Áhrif
blaða.
menn skortir
Ummaeli
Carlyles.