Eimreiðin - 01.01.1925, Blaðsíða 49
eimreiðin VÍSINDI, SÁLARRANNS. OQ KIRKJA
45
tvö tölublöð, 17. og 24. október. Ritstjórinn gat þess í byrj-
Un> að fátt hefði gert kirkjunni eins mikið tjón og tómlæti
kað, sem hún sýndi andlegum hreyfingum þeim, sem upp
kaemu öðru hvoru og drægju að sér athygli fjöldans. Ein
slík hreyfing hefði nú náð geysimikilli útbreiðslu og bættust
henni fjöldi nýrra liðsmanna svo að segja daglega. Þessvegna
Vaeri meir en mál til komið, að kirkjan skifti sér af málinu.
Sir Oliver Lodge hefur í greinum þessum lýst í fáum en
skýrum dráttum árangri sálarrannsóknanna og þýðingu þeirra
fyrir kirkjuna. Hann heldur því
fram, að andahyggjan sé í
fauninni jafngömul trúarbrögð-
UI,um. I ritningunni verður
hennar vart hvað eftir annað.
Efi andahyggja nútímans hefur
fleira sameiginlegt með vísind-
Urn en trú. Takmark hennar er
að fá fulla vissú fyrir kenning-
únum um framhaldstilveru ein-
staklingsins, sem öll æðri trú-
arbrögð grundvallast á, rann-
saka það mál ofan í kjölinn
°S nota árangur þeirra rann-
sókna sem leiðarvísi um alla
ðreytni manna hér á jörð.
Sálarrannsóknirnar liggja miðja vegu milli tveggja stórvelda
1 andans heimi. Þær eru ekki ennþá taldar sem ein grein
hefðbundinna vísinda, né heldur er árangur þeirra viðurkend-
Ur af þjónum rétttrúnaðar. Tiltölulega fáir hafa lagt stund á
hær til nokkurrar hlítar. Þær skortir opinbera viðurkenningu
°9 skipulag. Margir hafa tekið að rannsaka málið svo að
Se9ia af tilviljun, og hafa stundum lent í ógöngum. En svo
hefur það reynst hér sem oftar, að það sem var hulið spek-
ln2úm og hyggindamönnum var opinberað smælingjum.
Þegar talað er um sálarrannsóknir, er átt við svo nákvæma
°9 fullkomna athugun sem unt er, á þeim dulargáfum, sem
með mönnum felast og til skamms tíma hefur verið veitt lítil
sem engin eftirtekt. Um dulargáfur þessar er lítt rætt í sálar-