Eimreiðin - 01.01.1925, Blaðsíða 70
66
UM RITDÓMA
eimreiðiN
vel velvildar megi heyrast þar líka. Á bókamarkaði vorum er
nú nóg framboð til þess að hægt sé að herða á kröfunum.
Og þó að þær sé gerðar í nafni smekks og listar, eins og á
blómöld íslenzkrar sagnaritunar, án bakhjalls fjár og frægðar,
eiga þær að mega sín mikils eigi að síður. Auk þess má
trúa því, að ef bókmentir vorar ná þeirri fullkomnun, sem
samboðin er tungunni og gáfum þjóðarinnar, þá muni fremstu
höfunda vora hvorki bresta innlendan né erlendan frama.
Enn eru ekki taldar allar afieiðingar smæðar vorrar og fá-
tæktar. Islenzk blöð hafa hvorki rúm fyrir rækilega ritdóma,
né fé til þess að borga fyrir þá. Þau taka því oft og einatt
aðsenda ritdóma, ritaða af vinum höfunda og kostnaðarmanna
og í raun réttri grímubúnar auglýsingar. Þau fá þarna dálka-
fylli fyrir ekki neitt, en hins er ekki gætt, að lesöndum er
oft vísað skakt til vegar. Einn af ritstjórum vorum er jafnvel
sjálfur bóksali og bókaútgefandi, og notar blöð sín óspart til
þess að halda sínum bókum fram með öllu móti. Tímaritin
eru mörg og smá. Ekkert þeirra þykist þess megnugt að
flytja rökstudda dóma um allar helztu bækur, sem út koma.
Úrræðið verður oft að skrifa lítils verðar bókafregnir, en til-
viljun ræður, hverjar bækur verða alveg út undan. Auk þess
er það sitt hvað að vera góður ritstjóri og góður ritdómari-
En af því að fáir menn nenna að skrifa þessar örstuttu bóka-
fregnir, lenda þær flestar á ritstjórunum sjálfum. Tímaritin eru
háð rithöfundunum. Þá vilja ritstjórar oft ekki styggja. Eg
man svo langt, að á stúdentsárum mínum fekk eg tvo rit-
dóma endursenda frá tveim tímaritum vorum, af því að þeir
þóttu of tannhvassir. Ef margir ungir menn verða fyrir
því sama, getur það dregið úr löngun þeirra til þess að
vanda sig.
VI.
Úr furðu mörgu af því, sem nú hefur verið talið, mætti
bæta með því að hafa í landinu eitt tímarit, sem léti ritdóma
og ritgerðir um bókmentir sitja í fyrirrúmi, en ætlaði þeim
ekki aðeins það rúm í skut, sem afgangs er öðru efni. Þetta
tímarit ætti að flytja fullkomna íslenzka bókaskrá, dæma og
skýra þær bækur. sem þess eru verðar, en geta hinna stutt-