Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1925, Page 22

Eimreiðin - 01.01.1925, Page 22
18 KYNGÆÐI OG KYNSPILLING EIMREIÐIN þjóðin erft, til sálar og líkama. Kynslóðirnar hafa fleytt þeim eftir öldum tímans. Eins og laufblöð að hausti hafa þær verið skammlífar og fallið í valinn hver af annari, en líf kyns- ins er síungt, eins og laufblöðin á vorin, og þaðan stafar þrekið og þolið. Oáran getur þó eigi síður tekið kynið en landsfólkið, sem af því sprettur, og grípi hún um sig í gró- andanum, standa stofnarnir berir og kulnaðir eftir. Kynið deyr út. Meðal einkenna þessa kyns er hár og þreklegur líkams- vöxtur, ágæt karlmenska og góð sálaratgerfi. Þessir kostir ásamt mörgum, sem eigi er tök á að lýsa hjer, hafa verið arfgengir í beztu ættum kynsins. Eðlilega hefur einnig margt misjafnt slæðst með í kyninu, og það hafa líka kynslóðirnar, þær af lakari endanum, tekið í arf. Göfugmenska og höfðing- lund er arfgengt ekki síður en illmenska og smásálarskapur, leið og ófrjó leti eigi síður en ágæt karlmenska. Hneigðir til sjúkdóma, mismunandi að skaðsemd fyrir einstaklinga, ættir og kyn, hafa einnig gengið í arf. Einstaklingshyggja landsmanna hefur jafnan verið meir í hávegum höfð en ættarhyggjan. Einstaklingsdropinn, hér og víðar, álítur sig sjálfstæða heild, sjálfum sér nógan. Menning síðastliðinnar aldar gerði mikið að því að blása að þeim glæðum, og mun lengi eima eftir af. Háðir eru þó einstaklingarnir og öll hérvist þeirra lífsins Stórasjó. Ættirnar sem í hann falla eru meira virði en þeir. Efling ættanna hefur þó jafnan verið látin sitja á hakanum. Ef lífheildin á að blómgast og dafna, verður að koma hér breyting á. Til eflingar henni verður að leggja áherzlu á að hlúa að því, sem bezt er í fari góðra ætta, og að það nái sem mestri útbreiðslu og yfirhönd. Hér standa íslendingar öllum öðrum þjóðum betur að vígi. Þjóðin hefur frá öndverðu haft hugboð um þetta og því iðkað mannfræði og ættvísi. Úr þeirri námu mætti, ef rétt væri að farið, ausa þjóðargulli, sem er öllu æðra og betra. Af ágætum mannlýsingum má kynnast kostum og löstum forfeðranna um margar kynslóðir, því sem er eftirsóknarverðast fyrir líf ættanna og kynsins, og eins hinu, sem úr því dregur og forðast ber. Þessi fræði hljóta síðar meir, þegar mannvit
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.