Eimreiðin - 01.04.1927, Blaðsíða 92
188 FUNDABÓK FJÖLNISFÉLAGS eimreidin
sig, tillag sitt í fyrra. Gísli Thórarensen tók að sjer að semja
skýrslu um bindindisfjelögin.1) Síðan var slitið fundi.
H. K. Fríðriksson Br. Pjetursson. G. Thorarensen.
Konráð Gíslason. Glgr. Þórðarson J. Hallgrímsson.2)
|6. fundur 18451
Mánudaginn 28. d. apríl-mánaðar var haldinn Fjölnisfundur,
var fyrst valinn ábirgðarmaður, og fjekk Halldór Friðriksson
öll atkvæði, síðan var talað um verðið, voru ákveðnir 32
skilldingar, með flestum atkvæðum.
Sleit með því fundi.
Br. Pjetursso.
H. K. Friðriksson Konráð Gíslason Gl. Þórðarson
B. Thorlacius Br. Snorrason G. Thorarensen
|7. fundur 1845]
Sunnudaginn 19. Oktober 1845 var haldinn Fjölnisfundur,
voru 5 á fundi. Forseti skírði frá reikningum Fjölnis og
sagði að allur kostnaður fyrir árið 1844 væri borgaður,
og bókband fyrir þetta árið, og Fjölnir ætti í peningum
37 d. og ógoldin tillög væri 25 d.. Þvínæst skilaði forseti af
sjer forsetadæminu, og stakk uppá að Halldór Kr. Friðriksson
væri kosinn aptur, og fjellust fundarmenn á það; Brynjólfur
Pjetursson lofaði að rita eina örk í Fjölnir, og vera búinn
með hana 1. Febrúar. Síðan var Brynjólfur Snorrason kosinn
skrifari í stað Halldórs. Fundarmönnum kom saman um að
senda herra Fiedler3) á kostnað fjelagsins 1 exemplar af öll-
um Fjölni vel bundið, og lofaði Brynjólfur Petursson að skrifa
honum til með því og mælast til að hann sendi aptur ritgjörð,
og bauðst Konráð og Gísli Thorarensen til að snúa henni
á íslenzku.
Br. Snorrason Br. Pjetursson H. K. Friðriksson
Konráð Gíslason. G. Thorarenson
1) Prenfað í 8. árg. Fjölnis, bls. 77—83.
2) Síðasti Fjölnis-fundur, sem hann var á; hann dó 26. maí. Var síðan
ekki af fundaköllun fyr en um haustið.
3) Sbr. 1. f. m. aths.