Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1940, Síða 27

Eimreiðin - 01.10.1940, Síða 27
eimreiðin KVÖLD EITT í SEPTEMBER 323 Þarna fóru nokkrar ungar stúlkur eftir götunni á leiö niður í bæinn og hlógu. Þarna tipluðu þær á sínum háu hælum, með reittar augnabrunir, málaðar kinnar og varir. Skyldi nokk- ursstaðar inni í sál þessara vesalings manneskja leynast vit- neskjan um það, að þær áttu heima í köldu landi hjá fátækri og fámennri þjóð, sem þar á ofan var hertekin af erlendu ofurefli? Andrési fisksala fanst það ekki á þeim að sjá. Svona var ®ska nútímans. Gömul kona kom inn i stofuna og spurði, hvort hann ætlaði ekki að koma að borða kvöldmatinn. Hann þakkaði fyrir það °g spurði aftur á móti, hvort hún vissi nokkuð um Dísu. En gamla konan vissi ekkert um Dísu. —• —• :— Hann settist inn í stofuna að loluium kvöldverði, dró niður gluggatjöldin og kveikti Ijósin. Hann leit yfir fyrir- sagnir hinna erlendu frétta í Vísi: „Miðhluti Berlínarborgar lagður í rústir“ stóð þar, en fréttirnar náðu þó engri varan- Kgri festu í skilningi hans. Já, það var mikið, sem á gekk í heiminum!---------- —• — — Hann bjó með aldurhniginni tengdamóður sinni °g átti átján ára gamla dóttur. Hún hét Dísa. Klukkan var langt gengin tíu, er hann heyrði að gengið var ani frammi. Honum létti. Það var Dísa. Hún kom þó óvenjulega snemma heim i þetta sinn. Stuttu siðar kom Dísa inn í stofuna með ensk móðinsblöð í hendinni. — Já, slíkt ótti við ungdóminn nú á dögum, hégóminn og tildrið. Hann sagði það samt ekki. Sat á sér og þagði. Hún var ljóshærð og lagleg með blá augu. — Sæll, gamli minn, sagði hún frjálsmannlega. — Komdu sæl, var svar hans, seinlátt og dræmt. Hvað, hefurðu ekki opnað útvarpið, pabbi? Hún gekk 'viðtækinu og skrúfaði frá. Það var endurtekning frétta: ’>Árásirnar stóðu yfir frá því í gærkveldi og fram á dag. Klukkan rúmlega sjö, þegar fólk var á leið til vinnu sinnar 1 London, var enn gefið merki um ....“ Hún lokaði tækinu snógglega og gekk til sætis í annan djúpa stólinn. — Það er a^alt sama sagan, sagði hún og tók að fletta myndablöðunum sinum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.