Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1940, Page 34

Eimreiðin - 01.10.1940, Page 34
330 KVÖLD EITT í SEPTEMBER EIMREIÐIN ÞaÖ varð steinhljóð, er hann hafði sagt þetta. Hyldjúp grafar- þögn.----------Hún fletti blaði, það skrjáfaði lítilsháttar í því, og við það kom hann aftur til sjálfs sín: — Nú skilur þú sjálfsagt, vegna hvers ég get ekki vitað af vináttu ykkar Arnars? Hún svaraði því ekki strax, en þó höfðu þessar óvæntu fréttir hvergi nærri raskað jafnvæginu á réttlætiskend hennar, og svo sagði hún: — En pabbi, því á hann að gjalda þess? Ekki á Arnar sök á því, þó að mömmu þætti vænt um föður hans. -— Nei, barnið mitt, hann á ekki sök á því. Hann á ekki að gjalda þess, og þú átt heldur ekki að gjalda þess. Þú skilur þetta ekki enn, það er ekki von. En þegar þú fæddist, þá viss- um við bæði ofurvel, mamma þín og ég, að ég var ekki faðir þinn. í öll þessi ár hef ég þagað um þetta við þig og vonaði, að ég þyrfti aldrei að segja þér það. Ég gat talið sjálfum mér trú um, að ég væri faðir þinn, en trú er ekki raunveruleiki. Ég veit, að þú fyrirgefur mér, hve lengi ég hef þagað. Þið Arnar eruð systkini. Skapgerð hennar var hörð, og í stað þess að glúpna og gugna óf liún blöðunum sinum saman og kreisti þau, svo að hnúar hennar hvítnuðu. Hún stóð upp og ætlaði að hraða sér burtu. Hann sá hvað henni leið og gekk sem fyrr í veg fyrir hana. Þá hörfaði hún á ný til baka, lét fallast niður í stólinn og brast í grát. Hann viknaði yfir óhamingju hennar, gekk til hennar og strauk henni yfir hárið. — Dísa mín, vertu skynsöm stúlka. Ég mátti til að segja þér þetta. Ég gat ekki þagað lengur. Mér hefur liðið illa eftir að ég lcomst að kunningsskap ykkar, því að ég gat ekki hugsað mér neitt samband ykkar á milli, jafnvel þótt svo illa væri ekki komið, að kynningu ykkar fylgdi nokkur dýpri alvara. Ég veit að æska nútímans er léttúðug, Dísa. Hún leit upp og þurkaði liörkulega tárin úr augunum, en er henni var litið á hann hvarf hörkusvipurinn, því að sál hennar rúmaði í einu vetfangi allar þjáningar þessa gráhærða manns á umliðnum árum. Hún sá, að hann var einstæðingur. — Pabbi, sagði hún, en hún þagnaði snögglega, því Þena
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.