Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1940, Side 48

Eimreiðin - 01.10.1940, Side 48
344 UM NÝFUNDNALAND OG SKULDABASLIÐ ÞAR eimreiðin auðæfi lands og sjávar, stjórnarfar, framfarir, lánsverzlun og skuldir. Þegar ég nýlega var staddur á háskólabókasafninu í Kaup- mannahöfn (ég var að snudda í ritum um Nfland), hitti ég þar mér til ánægju prófessor Jón Helgason (því hann snuddar þar daglega í norrænum skræðum). Ég sagði honum frá Nflandsáhuga mínum. Hann kvaðst skilja mig vel og óskaði mér góðs gengis með þessa ritgjörð. Því til áréttingar og' mér til viðvörunar sagði hann mér þessa sögu: Þýzkur prófessor var beðinn að skrifa sögu Vilhjálms keisara (hins síðasta með því nafni). Hann færðist undan því og taldi sig bresta kraft og áræði til þess. í þess stað tók hann sig til og reit sögu Kaligúlu Rómverjakeisara. Honum þótti hafa vel tekist; en mörgum þótti skrítið, að þarna var í rauninni saga Vil- hjálms vandlega rakin. Frá upphafi höfðu Nflendingar veitt þorsk af dugnaði og varla sint öðru. Fyrir atorku sjómanna fékk landsfólkið dag- legt brauð og landið varð sjálfstætt. Alt gekk þolanlega þar til framfarir hófust með járnbraut og námugrefti og papp- írsgjörð úr skógarviði. En járnbrautin varð til byrðar og ágóðinn af hinu rann í vasa gróðamanna, og á fiskimennina lögðust drápsklyfjar af óheinum sköttum, sem enginn þorsk- afli hröklc til að borga. Skattarnir gengu til óhófsframfara, sem eyðslusamir ráðherrar stofnuðu til og vanrælctu sjávar- útveginn. Svo kom heimskreppa (1929) og aflaleysi og óviss markaður á Ítalíu og Spáni. Þá óx atvinnuleysi, og atvinnu- leysisstyrkur kom til sögunnar og varð að landplágu hvort- tveggja. Lán voru tekin á lán ofan, en það var eins og nð pissa í skóinn sinn. Ríkisskuldirnar höfðu tvöfaldast á síðustu tólf árum og voru orðnar 102 miljónir dollara. Árlegar rentur þeirrar skuldar voru rúmlega 5 miljónir dollara, eða ineira en helmingur af ríkistekjunum. Seinast var ríkissjóður orð- inn þurausinn, því ekkert lán var lengur að fá. Þá varð stjórnin að biðja Englendinga að hjálpa, og þeir tóku við taumunum (1933). Síðan hefur 6 manna alræðisnefnd stjórnað landinu í umboði Breta og þeir lagt fram stórfé til að bæta ástandið og koma fjárhagnum í lag. Nefndin hefur orðið fyrir hnútu- kasti og bakmælgi fyrir harðstjórn og ódugnað. Þær henn-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.