Eimreiðin - 01.07.1943, Page 24
200
VILHJÁLMUR STEFÁNSSON OG ULTIMA THULE
EIMREIÐIN'
hindrað fólksfjölgun uin skeið, svo hriignunartímabil væri
komið yfir. —■ Umíak Eskimóa er, að því er ég fæ skynjað,
islenzki byrðingurinn og ágætt sjóskip, meðan skinnið heldur.
En skinnbátur íra virðist, eftir myndum að dæma, vera mjög
ótryggt sjóskip. Ekki trúi ég heldur á sjóferð Molduns,
Navigatio Brandani eða annan þvílíkan írskan skáldskap.
Skinnbátar munu og haldlitlir til langrar útivistar á hafi, því
þótt nokkur vörn gegn rotnun sé i seltu sjávarins, hljóta
skinnin að rotna fyrir áhrifum vætu, regns, lofls og liita, og
skirinin hljóta að þvælast og slitna sundur fyrir átökum sjáv-
arins. Og þar sem ekkert flotmagn er í bátnum sjálfum, mun
honum og auðhvolft eða auðsökkt af innföllnum sjó. — ú't-
holaðir og vel umbundnir eikarbolir eru miklu álitlegri far-
kostir til að fljóta vel og lengi. Og þeir munu vera langt-
um eldri uppfinning en húðkeipar. Líklega hafa flestöll lönd
og eyjar verið fundin, áður en farið var að gera húðkeipa.
Ekkert virðist mér sennilegra en það, að ísland hafi, út frá
þessum forsendum skoðað, hlotið að vera fundið mörgum
hundruðum, — ef ekki þúsundum — ára fyrir daga Pyþeasar.
Hið helzta, er niælir þessari ályktun í gegn, er fjarlægð þess frá
öðrum byggðum löndum, og að það liggur á móti ríkjandi
vindátt og straumi. En eftir að menn fóru að fara til Færeyja,
hlaut Island fljótt að finnast. Að það byggðist ekki, stafaði
aðeins af því, að það hefur ])á verið talið óbyggilegt.
Vilhjálmur hallast eindregið að þeirri skoðun, að Pyþeas
hafi fengið upplýsingar um Island á Bretlandi og siglt til ís-
lands og frá íslandi norðvestur að ísröndinni. Því verður ekki
móti mælt, að iýsingin á Thule Pyþeasar, hnattstaða ]iess og
afstaða þess til issins hæfir engu öðru landi en íslandi, en
kemur vel hcim við það. Ef vér vissum, hversu mikil vegar-
lengd ein grísk dægurssigling var, mundum vér hafa enn eina
upplýsingu um, hvar Thule Pyþeasar var. Hefði gríska dæg-
urssiglingin á svona hafskipum verið jöfn íslenzkum dægurs-
siglingum, þá var vegalengdin frá Skotlandi til íslands 6
dægurssiglingar, eins og Pyþeas segir vera frá Bretlandi til
Thule. Og frá Rifstanga er trúlegt, að seint í júní eða í byrjun
júlí hafa verið ein íslenzk dægurssigling norðvestur að ísrönd-
inni, en Pyþeas telur það gríska dægurssiglingu. Ekki mun