Eimreiðin - 01.07.1943, Blaðsíða 46
222
HÓPKENNSLA EÐA EINSTAKLINGSKENNSLA
EIMREIÐIN
og tækifæri til að taka sér verk fyrir hendur og ljúlca því á
likan hátt og hinir fullorðnu gera'. í öðru lagi verða börn að
fá að vinna saman og hjálpa hvert öðru. í þriðja lagi verða
þau að læra að fara vel með timann , bæði læra að virða hann
og venjast sjálf á að ætla hverju starfi sinn tima.
Með þessi meginatriði fyrir augum er skólakerfið mótað.
Fyrri hluta dagsins er skipt í þrennt. Morgunstund, 15 til 30
mínútur, er nefnd leiðsagnarstund. Þá er 2 til 3 stunda nám,
sem stundum getur verið einstaklingsstarf eins og í Winnetka.
Stundum eru fjórir eða fimm nemendur saman við borð, þeir
sem eru líkt staddir i náminu, og aðstoða þeir hver annan.
Síðustu 40 mínúturnar eru ætlaðar hópstarfi.
Dalton-kerfið hefst ekki fyrr en i fjórða bekk. Þá er búizt
við að börnin hafi fengið þann þroska í meðferð námstækj-
anna, að þeinr só ætlandi sjálfstætt nám.
Só um einstaklingsnám að ræða, sem skilið á að kallast þvi
nafni, verður mikill undirbúningur að hafa átt sér stað. Náms-
efninu er vandlega skipt niður í einingar. Er hver eining
miðuð við það, sem seinn nemandi getur lokið við á einum
degi. Tuttugu slík dagsverk eru nefnd ákvæðisvinna. Stundum
er því hagað eins og þegar sett er fyrir í skólum. Meginatriði
og undirskipuð atriði eru rituð greinilega á blað, sem nem-
andanum er fengið. Einnig getur hór verið að ræða urn við-
fangsefni til úrlausnar, og er það þá liðað sundur í megin-
atriði og aukaatriði.
Setjum svo, að þrjár stundir sóu notaðar til þessa náms,
næst á eftir fyrstu stundinni. Þá hefur nemandinn þrjai
stundir daglega i tuttugu daga til þess að ljúka við ákvæðis-
verkið. Gerum og ráð fyrir, að sex námsgreinar séu kenndai
daglega. Þá hefur hann sex námseiningar á dag og á tuttugu
dögunum 120 einingar. Til þess að Ijúka þeim, hefur hann *>0
stundir, sem hann má verja eins og hann vill. Óski hann að
taka fyrir eina námsgrein í einu og ljúka henni af, er honum
það heimilt. Eins getur hann tekið allar námsgreinarnar fy1'11
sama daginn. Tímatakmörk eru honum ekki sett. En Ijuka
verður hann hverri námseiningu svo að vel sé. Þeim, sem
lærist að nota vel hverja stund, vinnst oft furðu vel. Hefm
þar skólinn lagt áherzlu á atriði, sem áður hefur verið van