Eimreiðin - 01.07.1943, Side 37
eimreiðin
VÆNGILLINN
213
vinnar, því aö árið 1909 lagði hann þær á hilluna að mestu og
sneri sér að smíði fjögra hreyfla flugvéla. Hann smíðaði árið
1913 fyrstu fjögra hreyfla flugvélina, sem reyndist nothæf,
°g aldarfjórðungi síðar fyrstu flutningaflugvélarnar, sem voru
1 förum yfir Atlants- og Kyrrahaf. Sikorsky gleymdi þó aldrei
hugmyndinni um vængilinn, og árið 1929 tók hann að fást við
hana að nýju fyrir alvöru. Hann var þá fyrir nokkru fluttur
«1 Ameriku og orðinn frægur flugvélasmiður, einkum fyrir
langflugvélar sínar (Clippers), sem reynzt höfðu ágætlega. En
arið 1938 el'ndi Bandaríkjaherinn til samkeppni um smíði
vængils. Og Sikorsky varð hlutskai*pastur.
Hugmyndin um vængilinn er langt frá því að vera ný. Fyrir
400 árum gerði Leonardo da Vinci, málarinn og hugvitsmað-
urinn ítalski, uppdrætti að slíku fartæki. Siðastliðin 40 ár
hefur fjöldi hugvitsmanna barizt við að finna upp flugtæki,
sem gæti tekið sig beint upp af jörðu og setzt beint niður, farið
aftur á bak og áfram í loftinu og loks staðnæmzt í loftinu án
l'ess að falla fil jarðar. Flestum mistókst alveg. Sumir gáfust
UPP» urðu gjaldþrota, misstu vitið. Frönskum manni tókst
anð 1907 að smíða tæki, sem gat lyft sér beint upp frá jörðu
um nokkur fet. Árið 1916 smíðaði austurrískur hugvitsmaður
luiggja hreyfla vængil, og fleirum varð nokkuð ágengt. En
alltat var eitthvað að. Vélarnar reyndust ótraustar, stjórnin
iÚ!- í handaskolum, og oft urðu slys við þessar tilraunir. Bezt
lökst flugvélasmiðhum Fokker, sem smíðaði árið 1937 all-
vandaðan vængil, sem hélt sér á flugi óslitið í eina klukku-
Hund og tuttugu mínútur. En frekari fra.mkvæmdir um smíð
a hessu fartæki urðu engar.
Vængill Sikorskys er á stærð við venjulegan 5 manna bíl.
A haki hans er þríálma, vélknúinn vængur. Einn meginmunur
V0engils og flugvélar er, að vængur vængilsins snýst um ás,
en vængir flugvélar eru fastir að mestu. Snúningshraði vængs-
ms veldur þvi, að fartækið lyftist beint upp frá jörðu. En
Vængurinn verkar einnig sem skrúfuspaði til þess að knýja
lartækið áí'ram eða aftur á bak í loftinu. Vængillinn vegur
llm 2% tonn með áhöfn og hefur um 130 km. meðalhraða.
í,eit er ráð fyrir, að bæði stærðina og hraðann verði auðvelt
aÖ auka.