Tímarit lögfræðinga - 01.10.1953, Side 10
200
Aöslaöa clómara lil anclavara viö gagnrj/ni.
tveggja, Iivorsu nauðsynlegt það er, að dómari vandi dóma-
samningu sína, svo sem kostur er, og hversu fræðimanni
er hér vandfarið með „salt gagnrýninnar, það þarfa þjóð-
félagskrydd", eins og þekktur rithöfundur hefur komizt
að orði.
1 október 1953.
Árni Tryggvason.
Theodór B. Líndal:
Járnið á Dynskógafjöru
og málaferli um það.
Sumarið 1952 varð sá sjaldgæfi og talsvert umtalaði
atburður, að mikil málaferli hófust í Vestur-Skaftafells-
sýslu. Deiluefnið var eigna- og, eftir atvikum, björgunar-
réttur á hrájárni, sem varpað var fyrir borð úr e/s Persier
í apríl—maí 1941.
Málið vakti allmikla eftirtekt bæði af því, að um mikil
verðmæti var deilt, málsefnið að ýmsu sérstætt, aðfarir
nokkuð aðsópsmildar og málaferli sjaldgæf í Vestur-
Skaftafellssýslu.
Ritstjóri þessa tímarits hafði fyrir allöngu orð á því við
mig, að nokkur frásögn af máli þessu gæti orðið til fróð-
leiks, og væri ég réttur maður til þess að skrifa hana bæði
vegna tengsla minna við ritið og kunnugleika á málinu, en
ég var einn málflytjenda.
Ég féllst á, að margt fróðlegt hefði komið fram í málinu
og ætti ég bágt með að synja þessum tilmælum eins og á
stæði.
Hér verður þó mörgu sleppt og því, sem nefnt verður,
eklíi gerð eins góð slcil og skyldi, enda ekki hægt, því að