Tímarit lögfræðinga - 01.10.1953, Blaðsíða 31
Tímarit lögfrœðinga,
221
aði ekki kostnaði, þar til mjög mikil verðhækkun varð á
hrájárni, einkum vegna ískyggilegrar ófriðarbliku.
Hvort eigendur hefðu gefið sig fram, ef járnið hefði ver-
ið auglýst, verður ekki vitað nú. Heldur er það þó vafasamt,
ef auglýst hefði verið áður en til verðhækkunar kom. Sé það
rétt er það bending um, að eignaréttur hafi verið fallinn
niður og raknar hann þá ekki við, þótt verðhækkun komi
til. Héraðsdómur taldi þó meira við þurfa en hér var
greint og auk annars, sem styður niðurstöðu hans, er hinn
norski hæstaréttardómur, sem áður er vikið að.
Ég hef ekki rætt sérstaklega þau rök Kerlingardals-
bænda, að um hefð væri að ræða, og ekki heldur kröfu
þeirra og ríkissjóðs um sjálfstæðan björgunarrétt.
Um hið fyrra þarf ekki að fjölyrða. Dómurinn hafnar
því, að um hefð sé að ræða, með þeim almennu orðum, að
afstaða Kerlingardalsbænda hafi ekki verið slík, að til
eignarhefðar gæti leitt. Sjálfsagt er það haft í huga, að
ekki hafi, eins og á stóð, verið um vörslur að ræða, né
hefðarvilja, er í ljós væri látinn og sennilega þótt á skorta
um hefðartíma.
Sjálfstæður björgunarréttur bændanna kom ekki beint
til álita, því að samkvæmt dóminum var björgunarréttur
vátryggjenda leiddur af 2. mgr. 7. gr. iaga nr. 42/1926. En
þótt þetta ákvæði hefði ekki komið til greina og almennum
reglum um res derelictas verið beitt þá verður ekki séð,
að bændurnir hafi átt sjálfstæðan björgunarrétt. Reglurn-
ar um res jacentes eiga ekki við. Á hinn bóginn virðist
reglan, sem áður er vikið að, um meinalaus not af annars
manns eign (landi) hæfa vel. Af reglu 23. gr. laga 42/1926
um björgunarskyldu verður ekkert leitt um björgunarrétt.
Þar er aðeins um lögboðinn óbeðinn erindisrekstur að ræða.
Krafan um sjálfstæðan björgunarrétt ríkissjóðs var
leidd af björgunarsamningi vátryggjenda og Skipaútgerðar
ríkisins. Sá samningur var uppsegjanlegur, en var aldrei
sagt dpp. 1 sambandi við málið út af björgunarlaunum
(sbr. Hrd. XIV., bls. 76) skrifaði skipaútgerðin vátryggj-
endum bréf, þar sem tilkynnt var, að björgun hefði verið