Tímarit lögfræðinga - 01.10.1953, Qupperneq 43
Tímant löfjfræðinga
233
yrði sannaður af þeim. Hins vegar var höfðað mál á hendur
nokkrum þeirra fyrir brot á einkasölurétti lyfsala, er þeir
fremdu með óleyfilegum útilátum meðala. I fyrsta þess
konar máli, sem kom til yfirdóms, var smáskammtalæknir,
er fengið hafði smáskammtalyf frá Kaupmannahöfn og
úr lyfjabúð í Reykjavík, sýknaður í héraði og yfirdómi,
en hæstiréttur Danmerkur dæmdi honum 4 króna sekt.1 2)
Þetta var árið 1886, en árið eftir voru tveir smáskammta-
læknar dæmdir til greiðslu 4 kr. sektar fyrir þetta brot.-')
Árið 1900 er loks smáskammtalæknir einn tvívegis sekt-
aður fyrir brot þetta um 10 og 15 krónur. En í fyrra mál-
inu var hann sakaður um miklu alvarlegra brot, nefnilega,
að hann hefði með lækningaaðgerðum sínum valdið skaða.
Hafði hann látið taugaveiklaðan mann, sem til hans hafði
leitað, nota tintura belladonnae í 3. þynningu, að því er
hann taldi, en læknar töldu nokkru kröftugri og sjúk-
lingnum hafði orðið meint af. Var talið sannað, að söku-
nautur hefði valdið skaða með þessum hætti, og var hon-
um gert að greiða 40 króna sekt fyrir það í landsyfirdómi,
og staðfesti hæstiréttur þá niðurstöðu.3)
Meðan lög nr. 4/1884 giltu, hafa ekki fleiri mál fyrir
brot á þeim lögum en nú voru talin komið til aðgerða æðri
dómstóla.
G. Lög nr. 38/1911.
Loks eru lög nr. 4/1884 felld úr gildi með 8. gr. laga nr.
38/1911 um lækningaleyfi. Samkvæmt 1. gr. laga þessara
var þeim einum heimilt að fást við lækningar, er staðizt
hafa próf í læknaskólanum eða háskóla Islands. Ekki máttu
þó aðrir gera sér fæðingarhjálp að atvinnu en þeir, sem
lokið höfðu námsskeiði í fæðingarhúsi. Að sjálfsögðu héldu
þeir læknar, sem þá höfðu fengið lækningaréttindi sam-
kvæmt prófi í læknadeild háskólans í Kaupmannahöfn,
.!) Dómasafn III. 10, 78.
2) Dómasafn III. 190, 192.
:') Dömasafn VI. 195, 230, 401.