Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1978, Page 32

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1978, Page 32
króna, en heildargjöld vegna sams konar húsnæðis um 4,4 milljörðum, þannig að með þessari breytingu falla niður gjaldaliðir umfram tekjur að fjárhæð 1,2 milljarðar króna. Þá verða ýmsir minni háttar frádráttarliðir felldir niður. Má meðal þeirra nefna frádrátt að námi loknu vegna námskostnaðar eftir 20 ára aldur, sjúkra- og slysadagpeninga, kostnað við öflun bóka, verkfæra- kostnað, leikarafrádrátt, flugfreyjufrádrátt, messusöngsfrádrátt o.fl. Mikilvægasta nýmælið varðandi frádráttarliðina er þó það, að skatt- aðilum er heimilt að reikna sér til frádráttar 10% af launatekjum sín- um í stað þess að tíunda lífeyrissjóðsiðgjöld, iðgjöld af lífsábyrgð, iðgjöld til stéttarfélaga, sjúkra- og styrktarsjóða, vaxtagjöld og g'jafir til menningarmála. Athuganir benda til þess, að u.þ.b. % hlutum gjald- enda sé hagstætt að velja fremur þennan fasta frádrátt. Það eru fyrst og fremst þeir, sem hafa verulega vaxtabyrði, sem halda munu áfram að tíunda hina einstöku liði, en ekki felst í lögunum nein tak- mörkun á frádráttarbærni vaxtagjalda. Með þessum fasta frádrætti ætti framtalsgerð að geta orðið nokkuð einfaldari hjá allstórum hluta gjaldenda og vinna skattstofanna að sama skapi auðveldari. Þar að auki ætti þessi aðferð að leiða til aukinnar nákvæmni við staðgreiðslu opinberra gjalda, verði það kerfi tekið upp. Ekki er þó víst að þessi ein- földun verði eins mikil og í fljótu bragði gæti virst, því að skattfrelsi sparifjár er skv. lögunum tengt vaxtagjöldum, og þeir, sem vilja njóta þess, verða því áfram að telja fram vaxtagjöld sín. Eins og ég sagði áðan er mörgum mikilvægustu frádráttarliðum eldri laga haldið í hinum nýju lögum. Ýmsir þeirra eru þó í nokkuð breyttri mynd. Hingað til hafa vextir af innstæðum í innlendum bönk- um, sparisjóðum og innlánsdeildum félaga verið skattfrjálsir, ef til- teknum skilyrðum er fullnægt varðandi skuldastöðu gjaldanda í árs- lok. Jafnframt eru þessar innstæður undanþegnar framtalsskyldu og eignarskatti. Innstæður þessar verða nú alltaf framtalsskyldar, en hins vegar verða vextirnir frádráttarbærir eftir reglum svipuðum þeim og gilt hafa um skattfrelsið. Þó er gert ráð fyrir, að skilyrði fyrir frá- dráttarbærni vaxtatekna miðist við vaxtagreiðslur á árinu, en ekki ■skuldastöðu í árslok eins og nú er, enda hefur mönnum hingað til verið opin sú leið að greiða niður skuldir sínar rétt fyrir áramótin og njóta þannig skattfrelsis vaxta af sparifé allt árið, enda þótt skuldir þeirra hafi alla aðra daga en 31. desember numið vei'ulegum fjárhæðum. Þá er ákvæðum um sj ómannafrádrátt breytt allverulega. Hinn sér- staki sjómannafrádráttur, sem hefur verið ákveðin upphæð fyrir hvern mánuð á sjó, og hlífðarfatafrádráttur sjómanna, sem miðast hefur við 126

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.