Tímarit lögfræðinga - 01.11.1978, Side 48
þar fara meðal annars fram rannsóknir er varða manndráp, váleg
dauðsföll, líkamsmeiðingar og brot gegn X.—XIII. kafla hegningar-
laga. Sex rannsóknarlögreglumenn starfa í I. deild.
I II. deild er Erla Jónsdóttir deildarstjóri. Þar er einkum fengist við
að rannsaka auðgunar- og fjármunabrot. Langflest mál fara í þessa
deild, enda starfa þar 12 rannsóknarlögreglumenn.
I III. deild er Arnar Guðmundsson deildarstjóri. Þar eru til dæmis
rannsökuð spellvirki, brennur, sifskapar- og skírlífisbrot, brot gegn
sérrefsilöggjöf, og almennt má segja, að þangað fari þau mál, sem
hvorki falla undir I. né II. deild. Sex rannsóknarlögreglumenn starfa
við deildina.
Við embætti rannsóknarlögreglu ríkisins er Njörður Snæhólm yfir-
lögregluþjónn og auk þess eru þrír aðstoðaryfirlögregluþjónar.
Sú nýbreytni var tekin upp hjá embættinu að skipa sérstaka lög-
reglufulltrúa úr röðum rannsóknarlögreglumanna. Þeir eru nú fimm
talsins. Þessi nýskipan hefur og verið tekin upp hjá embætti lögreglu-
stjóra í Reykjavík.
TÆKNIDEILD
Vinnuaðstaða hjá tæknideildarmönnum hefur batnað mikið frá því
að embættið var stofnað. Ýmis tæki hafa og verið kevpt til deildarinn-
ar, sem ekki hafa áður verið notuð hérlendis. Möguleikarnir á því að
Ij úka tæknirannsóknum að fullu hérlendis hafa því stórlega batnað, þótt
enn sé nauðsynlegt að senda ýmis sýni utan til rannsókna. Sú þekking,
sem einna helst vantar hérlendis, er að sögn Hallvarðs Einvarðssonar
sérfræðikunnátta við rithandarrannsóknir. Það er því stundum nauð-
synlegt að senda utan skriftarsýnishorn við rannsókn á skjalafalsi
og fleiru.
Við tæknideildina starfa fjórir rannsóknarlögi’eglumenn og þar fer
fram margs konar athugun á mönnum og munum.
Að sögn Ragnars Vignis aðstoðaryfirlögregluþjóns og forstöðu-
manns tæknideildar eru öll tæki, sem notuð eru til vettvangsrannsókna,
geymd í þar til gerðum töskum eða boxum, þannig að handhægt er að
grípa til þeirra. Deildin er þannig í stakk búin tækniléga, að tryggt á
að vera, að ekki þurfi neitt að fara til spillis, sem finnst á vettvangi.
Deildin hefur nú eignast samanburðarsmásjá, sem mun vera meðal
þeirra fullkomnustu sinnar tegundar. Með aðstoð hennar er meðal
annars unnt að gera samanburð á byssukúlum og komast að því, hvort
skot er úr tiltekinni byssu. I smásjánni er einnig hægt að greina margs
konar verkfæraför og fleira. Við smásjána er tengd myndavél og er
142