Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1996, Síða 33

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1996, Síða 33
fram á, að seljendur hafi leynt sig gallanum sviksamlega eða að skilyrði standi á annan hátt til þess að dæma kaupanda skaðabætur úr hendi seljenda. Verði kaupanda þvf ákveðinn afsláttur úr hendi seljenda, og þótti hann hæfilega ákveðinn 20.000 krónur. I H 1995 1401 (Bakkahlíð) er til þess vitnað, að annmarkar á jarðvatnslögn og sökkulveggjum hússins hafi verið með þeim hætti, að kaupendur hafi ekki mátt búast við slíku. Voru kaupendur taldir eiga rétt til afsláttar úr hendi seljanda af þeim sökum. Sjá einnig H 1996, 3. október (Logafold) í málinu nr. 195/1995. I framangreindum dómum virðist áherslan liggja bæði á því, hve mikið kvað að gallanum og hvers eðlis hann var. í H 1990 506 (Breiðabakki) var talið, að kaupendur jarðarinnar hefðu mátt ætla, að hið selda land hefði verið ca. 50 ha., og að frávikin varðandi landstærðina yrði minni, heldur en raun varð á. Þessi dómur og H 1983 2148 (Bjarg við Seljalandsveg) endurspegla það viðhorf, að kaupendur megi jafnan búast við einhverjum frávikum varðandi magn og gæði, og að það sé ekki fyrr en komið er yfir ákveðin mörk í þeim efnum, sem hægt er að krefjast afsláttar. Sjá til samanburðar H 1947 518 (Spítalastígur) og H 1996, 15. febrúar (Hverfisgata 63 Hf.) í málinu nr. 223/1995. 7.3.2 Vitneskja seljanda Heimild kaupanda til að krefjast afsláttar er í eðli sínu óháð því, hvort seljanda var kunnugt um galla eða ekki, sbr. 42. gr. kpl. Seljandi verður m.ö.o. dæmdur til að veita kaupanda afslátt af kaupverði, þótt honum hafi verið ókunnugt um gallann. Sjá varðandi lausafjárkaup t.d. H 1989 199 (Valtaradómur), þar sem ekki þótti fram komið, að seljandinn hefði vitað við umrædda sölu, að valtarinn væri af árgerð 1969. Þóttu því ekki skilyrði til þess að dæma seljandann til greiðslu skaðabóta. Kaupandinn var hins vegar talinn mega treysta því, að þær upplýsingar, sem lágu fyrir við kaupin, væru réttar, og þar sem valtarinn var verðminni en kaupandinn mátti gera ráð fyrir, og þannig haldinn galla, þótti kaupandinn eiga rétt til afsláttar af kaupverði hans. í H 1996, 29. febrúar (Honda Accord) í málinu nr. 311/1994 þótti sannað, að seld bifreið hefði verið ekið a.m.k. 135.000 kílómetra, þegar hún var seld, en ekki 84.000 kílómetra, eins og greindi í afsali. Var kaupandi bifreiðarinnar því talinn eiga rétt til afsláttar af kaupverðinu „... án tillits til þess, hvort stefnda mátti vera kunnugt um þessi atvik“. Varðandi fasteignakaup sjá H 1967 108 (Bugðulækur), en í því máli þótti varhugavert að fullyrða, að seljandi hefði mátt vita, að hitalögnin í hinni seldu fasteign var tærð. Var sýknað af bótakröfu, en dæmdur afsláttur. Sjá einnig sératkvæði í H 1982 934 (Þingvallastræti á Akureyri), en þar var talið, að kaupandinn ætti rétt til afsláttar úr hendi seljanda, hvort sem seljandinn vissi um tilvist gallans eða ekki. Þrátt fyrir ákvæði 42. gr. kpl., er það talið geta skipta máli í fasteignakaupum 183
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.