Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1996, Síða 41

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1996, Síða 41
1. INNGANGUR Verkefni lögmanna eru margvísleg. Stór þáttur starfa þeirra lýtur að því að koma fram af hálfu aðila í skjóli umboðs, sem þeim hefur verið falið. Það er umfjöllunarefnið hér á eftir að gera grein fyrir megininntaki þessa umboðs, en í því efni verður einkum horft til þess sem nefnt er málflutningsumboð í 4. gr. laga nr. 61/1942 um málflytjendur (hér eftir nefnt MFL). Þó verður einnig litið að nokkru leyti til efnis umboðs lögmanna, þegar þeir annast hagsmuni skjólstæðinga sinna utan réttar. Á þeim vettvangi er þó að mörgu að hyggja og auðvitað útilokað að gera tæmandi grein fyrir öllum tilvikum. I MFL eru ákvæði er lúta að því, hverjum málsaðili má fela að flytja mál fyrir sína hönd. Lögin gera ráð fyrir fimm afbrigðum málflutningsumboðs. / fyrsta lagi getur aðili, ef hann er einstakur maður, látið tiltekin skyldmenni fara með mál fyrir sig, sbr. 1. mgr. 5. gr. MFL. í öðm lagi geta félög eða stofnanir, sem hafa embættisgenga lögfræðinga í fastri þjónustu sinni, látið þá fara með mál sín fyrir héraðsdómi hvar sem er á landinu, sbr. 21. gr. laganna. í þriðja lagi getur málsaðili falið héraðsdóms- eða hæstaréttarlögmanni að flytja mál fyrir sig. Ef aðili fer ekki sjálfur með mál sitt, lögmæltur fyrirsvarsmaður eða þau skyldmenni, sem talin eru upp í 1. mgr. 5. gr., er hann skyldur til að fela meðferðina héraðsdóms- eða hæstaréttarlögmanni, ef mál er rekið fyrir Hæstarétti eða héraðsdómi í Reykjavík eða á Akureyri, sbr. 2. mgr. 5. gr. MFL. (Hér eftir verður orðið lögmaður notað um þessar tvær starfsstéttir.) Þannig njóta lögmenn sérréttinda til málflutnings á greindum stöðum. Auk þeirra hefur dómsmálaráðherra með auglýsingu nr. 242/1976 ákveðið, að sérréttindi lögmanna skuli taka til fleiri staða. ífjórða lagi getur aðili, ef mál er rekið utan þeirra staða sem einkaréttur lögmanna nær til, falið hverjum lögráða manni, sem hefur almennan þroska meðferð máls síns, sbr. 19. gr. MFL. Það mun vera fágætt nú til dags, að aðili veiti ólöglærðum manni málflutningsumboð á grundvelli 19. gr.1 I fimmta lagi getur aðili falið manni, sem rétt hefur til málflutnings í öðru ríki á Evrópska efnahagssvæðinu, að flytja mál sitt, þótt það sé rekið á því svæði, þar sem sérréttindi lögmanna taka til, enda starfi hann að málinu með lögmanni, sbr. 4. mgr. 5. gr. MFL. Talið er, að almennt gildi sömu reglur um málflutningsumboð, hver svo sem málflutningsumboðsmaðurinn er, hvort sem hann er lögmaður eða ekki.2 Þó er það ekki algilt, sbr. 1. mgr. 4. gr. MFL. Áður en fjallað verður um efni og inntak málflutningsumboðs, þykir nauðsynlegt að víkja nokkrum orðum að forsögu þeirra reglna, sem nú er taldar gilda um umboð málflytjenda. 2. SÖGULEGUR BAKGRUNNUR Norsku lög Kristjáns konungs V. frá 15. apríl 1687 (hér eftir nefnd NL) tóku 1 Markús Sigurbjörnsson: Einkamálaréttarfar, bls. 123. 2 Markús Sigurbjömsson: Einkamálaréttarfar. bls. 124. 191
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.