Tímarit lögfræðinga - 01.11.1996, Page 83
A VIÐ OG DREIF
SKÝRSLA STJÓRNAR LÖGFRÆÐINGAFÉLAGS ÍSLANDS Á AÐAL-
FUNDI 31. OKTÓBER 1995
1.Inngangur
Aðalfundur Lögfræðingafélags íslands var haldinn í Lögbergi 29. október
1994 kl. 20:00. Fundinn sóttu 26 félagsmenn. Á dagskrá fundarins voru
venjuleg aðalfundarstörf. Á fundinum voru eftirtaldir kosnir í stjórn félagsins
starfsárið 1994-1995: Dögg Pálsdóttir formaður, Helgi Jóhannesson vara-
formaður, Kristján Valdimarsson ritari, Sigríður Ingvarsdóttir gjaldkeri, Kristín
Briem framkvæmdastjóri Tímarits lögfræðinga, Benedikt Bogason með-
stjómandi og Ragnhildur Arnljótsdóttir meðstjórnandi.
Á starfsárinu hafa verið haldnir 18 stjórnarfundir. Milli funda hafa stjómar-
menn unnið mikið starf að auki við hin ýmsu verkefni sem félagið annast.
Varaformaður félagsins, Helgi Jóhannesson, stýrði nefnd sem annaðist undir-
búning málþings ásamt stjómarmönnunum Ragnhildi Arnljótsdóttur og
Benedikt Bogasyni og framkvæmdastjóra félagsins Brynhildi Flóvenz. Fjár-
reiður félagsins hafa verið í traustum höndum Sigríðar Ingvarsdóttur. Kristín
Briem hefur haldið utan um rekstur Tímarits lögfræðinga með miklum ágætum.
Kristján Valdimarsson sá um ritarastörf og hélt utan um fundargerðir og
gestabækur félagsins af stakri vandvirkni. Ég leyfi mér að þakka öllum stjómar-
mönnum mikil og óeigingjörn störf í þágu félagsins.
Starf félagsins á liðnu ári hefur verið með hefðbundnu sniði. Skal nú vikið að
helstu þáttum í starfsemi félagsins á því starfsári sem nú er að ljúka.
2. Fræðafundir og málþing
Starfsemi Lögfræðingafélags Islands má í meginatriðum skipta í fræðafundi
233