Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.2000, Page 10

Tímarit lögfræðinga - 01.09.2000, Page 10
1.2 Samstæður Milliverðsreglur skipta mestu máli í viðskiptum innan samstæðu. Samkvæmt 2. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög (hlfl.) mynda móður- og dótturfélög í sam- einingu samstæðu. Þegar hlutafélag á svo mikinn hluta hlutafjárins í öðru hlutafélagi eða einkahlutafélagi að það fer með meiri hluta atkvæða í félaginu, telst fyrmefnda félagið móðurfélag en hið síðamefnda dótturfélag, sbr. 1. mgr. 2. gr. hlfl., sbr. einnig 2. gr. 1. nr. 138/1994 um einkahlutafélög (ehlfl.). Við nrat á réttarstöðu samstæðunnar er þýðingarmikið að gera sér grein fyrir þeirri staðreynd að sérhvert félag innan samstæðunnar er sjálfstæður lögaðili með sjálfstætt löghæfi bæði í fjármunaréttarlegum og skattaréttarlegum skiln- ingi. Við mat á réttarlegri stöðu samstæðufélagsins skal því tekið mið af því sem einstöku félagi án tillits til þess að það er hluti af samstæðu.4 Við mat á samstæðufélagi í félagaréttarlegu og skattaréttarlegu samhengi verður því að horfa á félagið með hliðsjón af þeim reglum sem gilda um óháð félög. Þetta þýðir að samstæðufélagið gerir upp skattskyldar tekjur sínar samkvæmt þeim efnis- og formreglum sem gilda um óháð félög.5 Uppgjör samstæðufélags á skattskyldum tekjum er því einungis hægt að vefengja samkvæmt almennum reglum sem gilda um tekjuleiðréttingu. Það er því mikilvægt að gera sér grein fyrir því að milliverðsleiðréttingar eru frávik frá almennum skattaréttarlegum meginreglum og útheimta því ótvíræða lagaheimild.6 Það fellur utan ramrna þessarar greinar að fjalla nánar um skilgreiningu samstæðu skv. hlutafélaga- lögum. I lögum nr. 144/1994 um ársreikninga merkir félagasamstæða móður- félag og dótturfélög þess, sbr. 7. tl. 2. mgr. 1. greinar. Sú skilgreining sem þar kemur fram er efnislega svipuð þeirri sem hlutafélagalögin hafa að geyma, sbr. ennfremur sjöundu félagaréttartilskipun ESB um samstæðureikninga.7 Hugtakið samstæða eða félagasamstæða finnst ekki í tekjuskattslögunum, en í 57. gr. B þeirra laga um samsköttun hlutafélaga er rætt um móðurfélag og dótturfélög. Skilyrði fyrir samsköttun hlutafélaga er a.m.k. 90% eignarhald. I skilningi þessarar greinar, sem kom inn í lögin með lögum nr. 154/1998, má segja að samstæða geri ráð fyrir a.m.k. 90 % eignarhaldi. Akvæði 1. mgr. 58. gr. tskl. hafa mesta þýðingu varðandi félagasamstæður. Greinin hefur hins vegar ekki að geyma nein ákvæði um það hvenær samstæða er talin vera fyrir hendi. 1.3 Föst atvinnustöð Föst starfstöð eða föst atvinnustöð (útibú, skrifstofa, deild) hefur ekki sjálf- stætt löghæfi eins og félag. Föst starfstöð erlendra aðila er þó háð takmarkaðri skattskyldu á íslandi, sbr. 4. tl. 3. gr. tskl., og tekjur innlendra aðila af fastri 4 Sbr. Jan Pedersen: Transfer pricing. 1998, bls. 9 til 10. 5 Annað mál er heimild til samsköttunar félaga innan sömu samstæðu, sbr. tskl. 57. gr. B, sbr. 8. gr. 1. nr. 154/1998 og 2. gr. 1. nr. 101/1999. 6 Sjá Jan Pedersen: Transfer pricing. 1998, bls. 10. 78
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.