Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.2000, Blaðsíða 19

Tímarit lögfræðinga - 01.09.2000, Blaðsíða 19
245/1963 um tekjuskatt og eignarskatt um „skyldulið". Skyldulið er talið allir þeir sem framteljanda er að lögum skylt að framfæra, s.s. maki, foreldrar og böm, þar með talin kjörböm, stjúpböm og fósturböm. I nýlegum úrskurði yfir- skattanefndar frá 28. júní s.l. var vikið að tengdum aðilum. í málinu nr. 279/2000 hafði skattstjóri beitt 1. mgr. 58. gr. tskl. í máli A ehf. sem hafði keypt og leigt aflakvóta af X ehf. og G ehf. A ehf. hafði með höndum bókaútgáfu og eignaumsýslu. Byggði skattstjóri á því m.a., að þessi viðskipti væru á milli tengdra aðila, þ.e. A ehf., X ehf. og G ehf. Tengslin væru með þeim hætti að B, sem var stjómarformaður og aðalhluthafi A, væri mágur D, sem var stjómarmaður í X og G á þeim ámm sem málið náði til. Þá hafi D verið í skuld við A í árslok 1995. Loks hafði skattstjóri komist að því að B væri „kunnugur“ framkvæmdastjóra X. Yfirskattanefnd segir orðrétt um þennan málatilbúnað skattstjóra: „Samkvæmt framansögðu verður ekki talið að skattstjóri hafi sýnt fram á að umræddir samningar um kaup á rækjukvóta, sem í málinu greinir, og ráðstöfun kvótans til leigu séu hvor um sig eða samkvæmt heildstæðu mati í þeim mæli frábrugðnir því, sem almennt gerist í slíkum viðskiptum, þannig að 1. mgr. 58. gr. laga nr. 75/1981 verði beitt í þessu tilviki. Samkvæmt þessu hefur út af fyrir sig ekki sjálfstæða þýðingu að fjalla um þau tengsl aðila, sem fyrr greinir, en tekið skal fram að ályktanir skattstjóra um þýðingu þeirra tengsla verða að teljast bæði langsóttar og byggðar á veikum grunni. Samkvæmt því sem hér hefur verið rakið, er krafa kæranda tekin til greina varðandi þetta kæruatriði“. Eðlilegast væri að sjálfsögu að skýr ákvæði væru sett um það í 58. grein tskl. að skilyrði fyrir beitingu ákvæðanna væru hagsmunatengsl aðila og það væri síðan nákvæmlega rakið hverjir teldust hagsmunatengdir í skilningi laganna. Allt að einu veður að gera kröfur til þess að skattyfirvöld sýni fram á það að um hagsmunatengsl milli aðila sé að ræða. Hagsmunatengsl eru talin valda því að verðákvarðanir í viðskiptum verði með óvenjulegum hætti. Þar sem ekki er um hagsmunatengsl í viðskiptum að ræða eru það almennt hagsmunir seljanda að ná sem hæstu verði fyrir þá vöru eða þjónustu sem hann hefur á boðstólum og hagsmunir kaupanda - aftur á móti - að greiða sem lægst kaupverð. Seljandi og kaupandi sem ekki eru á nokkum hátt háðir eða tengdir hvor öðram eru að enskum rétti taldir standa í „arm’s length“ hvor frá öðrum og er þaðan komið heitið „arm’s length prin- ciple“. Það hefur í grein þessari verið nefnt armslengdarreglan í lauslegri þýð- ingu. Þegar um hagsmunatengsl er að ræða milli seljanda og kaupanda teljast þeir ekki vera í þeirri fjarlægð hvor frá öðrum að tryggt sé að verðákvarðanir í samningum þeirra á milli séu í samræmi við það sem almennt tíðkast í sams konar viðskiptum milli óháðra aðila. Milliverðsreglur tekjuskattslaga byggja á þessari armslengdarreglu. Eins og af þessu má ráða er armslengdarreglan mjög almenns eðlis og ber því þegar af þeirri ástæðu eingöngu að beita henni að vel ígrunduðu máli. Reglan má aldrei vera afsökun fyrir geðþóttaskattlagningu.23 23 Sbr. Kristján Gunnar Valdimarsson: Tímarit lögfræðinga. 1999, bls. 241. 87
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.