Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.2000, Side 11

Tímarit lögfræðinga - 01.09.2000, Side 11
starfstöð á erlendri grund eru skattskyldar á íslandi, sbr. upphafsákvæði 1. og 2. gr. tskl. Skattlagning fastra starfstöðva ræðst nánar af tvísköttunarsamningum þar sem þeir eru fyrir hendi. Skattlagning fastrar starfstöðvar erlendra aðila á Islandi fer eftir svokallaðri „beinni aðferð“, þar sem litið er á hina föstu starfstöð sem sjálfstætt fyrirtæki með eigin tekjur og gjöld. Gert er ráð fyrir því að hin fasta starfstöð hafi sjálfstætt bókhald sem haldi utan um rekstur stöðvarinnar aðskilið frá bókhaldi höfuðstöðvanna.7 8 í 2. mgr. 3. tl. 71. gr. tskl. er að finna undantekningu frá þessari reglu þar sem mælt er fyrir um óbeint uppgjör á skattskyldum tekjum erlendra vátryggingarfélaga hér á landi. Samkvæmt flestöllum tvísköttunarsamningum sem Island hefur gert við önnur lönd er heimild til skattlagningar hagnaðar fastrar atvinnustöðvar fyrir- tækis í því rrki þar sem starfsemin fer fram. Samkvæmt 5. gr., sbr. 7. gr. samn- ingsins við Sviss frá 3. júní 1988, t.d., má skattleggja hagnað útibús íslensks félags í Sviss þar í landi. I 2. mgr. 7. gr. svissneska samningsins er að finna ákvæði um „beina aðferð“ þar sem mælt er fyrir um að í hvoru samningsríki fyrir sig skuli hinni föstu atvinnustöð talinn sá hagnaður sem búast hefði mátt við að hún hefði aflað ef hún hefði verið óháð, aðskilið fyrirtæki sem hefði haft með höndum sömu eða svipaða starfsemi og með sömu eða svipuðum skil- málum og höndlað algerlega sjálfstætt við fyrirtækið sem hún er atvinnustöð fyrir. Samkvæmt þessu skal hagnaðarskiptingin milli fyrirtækis á íslandi annars vegar (höfuðstöðvanna) og hinnar föstu atvinnustöðvar í Sviss hins vegar (útibúsins) fundin með hliðsjón af því hvemig sú skipting hefði verið í við- skiptum milli óháðra, óskyldra aðila. Samkvæmt 23. gr. sama samnings skal slíkur hagnaður undanþeginn skattlagningu á íslandi. 1.4 Málamynda- og sniðgöngusjónarmið Milliverðsreglan sem byggir á armslengdareglunni, sem m.a. má finna í 1. mgr. 58. gr. tskl. og í 2. mgr. 7. gr. og 9. gr. tvísköttunarsamninga, byggir á því að um fullgilda og löglega samninga og samingskjör sé að ræða í viðskiptum milli aðila. Reglan lýtur einungis að því að finna „rétt verð“ í gildum lögskipt- um milli aðila og kemur svokölluðum málamynda- og sniðgöngusjónarmiðum ekkert við.9 Málamynda- og sniðgöngusjónarmið fjalla fyrst og fremst um þau tilvik þar sem ráðstöfun eða ráðstafanir eru færðar í annan lagalegan búning en 7 Sbr. Stefán Már Stefánsson: Hlutafélög og einkahlutafélög. 1995, bls. 43. 8 Samkvæmt Handbók ríkisskattstjóra um tekjuskatt og eignarskatt, mars 1996, bls. 32, er við mat á því hvað telst föst starfstöð tekið mið af athugasemdum með samningsfyrirmynd OECD. 9 Sjá Jan Pedersen: Transfer pricing, bls. 15: „Det er væsentlig at gpre sig klart, at transfer pricing princippet ikke involverer ipvrigt civil- eller skatteretligt ulovlige dispositioner. Princippet retter sig alene mod gyldige og retskraftige aftalevilkaar, som korrigeres under anvendelsen af arms- længde princippet. For saa vidt foreligger der i givet fald en skatteunddragelse, idet transfer pricing princippet regulerer den skatteretlige lovlighed af intemomsætningen. Princippet maa imidlertid holdes adskilt fra pvrige- og væsensforskellige- skatteretlige normer, som regulerer proforma- og omgaaelsestilfælde“. 79
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.