Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.2000, Side 17

Tímarit lögfræðinga - 01.09.2000, Side 17
Ólögmæt ráðstöfun á varasjóði gat bæði haft afleiðingar fyrir tekjur félagsins og hluthafans. Akvæði þetta kom fyrst inn í tekjuskattslög með 3. gr. laga nr. 20/1942 um breyting á lögum nr. 6/1935 um tekjuskatt og eignarskatt. Það er því ljóst að hluti 2. mgr. 58. gr. er að stofni til eldri en lög nr. 40/1978.19 Yfir- skattanefnd virðist gera sömu kröfur til beitingar hennar og beitingar 1. mgr. 58. gr. sbr. yskn. nr. 266/1998, en þar segir orðrétt: Ber þeim (skattyfirvöldum, innsk. höf.) annars vegar að sýna fram á, svo óyggjandi sé, að verð sé óeðlilega hátt eða lágt, og hins vegar skjóta traustum stoðum undir matsverð það sem þau ákvarða. Þar sem 2. mgr. 58. gr. laga nr. 75/1981 kveður á um skattlagningu tekjuauka á svo matskenndum grundvelli, sem fyrr greinir, er brýnt að gætt sé varúðar við ákvörðun skattskyldra tekna samkvæmt þessu ákvæði. Ef til vill er eðlilegast að líta á ákvæði 2. mgr. 58. gr. tskl. sem hluta af arms- lengdarreglunni. 2. MILLIVERÐSREGLUR í ÍSLENSKUM TEKJUSKATTSLÖGUM Svo sem lýst var í innganginum hér að framan er niðurstaðan sú að 58. gr. tskl. hefur að geyma almenna milliverðsreglu. 2.1 Aðrar milliverðsreglur Nefna má eftirfarandi ákvæði í tekjuskattslögunum sem hafa að geyma milliverðsreglur. Ákvæði 2. málsliðar 1. tl. A-liðs 7. gr., sbr. 59. gr. s.l. um reiknað endurgjald, fela í sér heimildir til ákvörðunar reiknaðra launa í eigin atvinnurekstri með hliðsjón af hugsanlegum launum til ótengdra eða óskyldra. Ákvæðin geta einnig átt við ákvörðun launa manns sem vinnur við rekstur sem rekinn er í sameign með öðrum eða á vegum lögaðila. Ákvæði 2. mgr. 2. tl. C- liðs 7. gr. kveða á um teknareikning húsaleigu á fasteignamatsverði ef heildar- leigutekjur ná ekki því marki. Önnur málsgrein 24. greinar felur í sér heimild fyrir skattyfirvöld til ákvörðunar kaup- eða söluverðs ef tilgreint verð í maka- skiptasamningi er talið verulega frábrugðið því sem almennt gerist í hliðstæð- um viðskiptum við bein kaup. Áður eru nefnd ákvæði 3. tl. 71. gr. um erlend vátryggingarfélög. Þá er skýr milliverðsregla í 2. mgr. 12. greinar 1. nr. 31/1999 um alþjóðleg viðskiptafélög, þar sem mælt er fyrir um það að öll viðskipti alþjóðlegra við- skiptafélaga við aðila þeim tengd skuli gerð á grundvelli almennra kjara og venju í viðskiptum óskyldra aðila. I reglugerð um tekjuskatt og eignarskatt nr. 245/1963 má nefna 1. málslið 2. mgr. B-liðs 13. greinar þar sem kveðið er á um það að laun greidd í hlunnindum skuli talin til tekna á gangverði á hverjum stað og tíma og ákvæði 2. tl. B- liðs 19 Sbr. hins vegar yskn. 434/1995 og 525/1995, þar sem 2. mgr. 58. gr. er talin yngri að stofni til. 85
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.