Tímarit lögfræðinga - 01.09.2000, Page 75
Jón Steinar Gunnlaugsson
er hœstaréttarlögmaður í Reykjavík.
JÓN STEINAR GUNNLAUGSSON:
LAUSUNG í LAGAFRAMKVÆMD1
1. INNGANGUR
Eins og dómarar og lögmenn vita öðrum fremur felast viðfangsefni lög-
fræðinnar í að fjalla um og skera úr um réttarstöðu manna og leysa ágreining
sem upp kemur í samskiptum þeirra. Þetta eru oftast viðfangsefni sem varða
menn miklu. Þýðing þeirra er mest þegar við þau er fengist fyrir dómstólum
vegna þess að þar eru kveðin upp hin endanlegu orð í deilumálum. Við köllum
þau dómsorð. A málþingi dómara og lögmanna í dag viljum við fjalla um dóm-
stólana, hlutverk þeirra og starfshætti í hinu lýðræðislega skipulagi sem við
þykjumst hafa á samfélagi okkar.
Ekki þarf að eyða hér löngu máli í að útlista þá meginskiptingu á meðferð
ríkisvaldsins í okkar lýðræðislega þjóðskipulagi sem fólgin er í þrígreiningu
þess. Þó að sú skipting sé ekki að öllu leyti hrein felst án nokkurs vafa í henni
eitt megineinkenni skipulagsins. Lýðræðið felst í því að þjóðkjömir fulltrúar
setja leikreglumar, þ.e.a.s. lögin. Til þess hafa þeir beint umboð frá þjóðinni,
fengið í almennum kosningum. Á vettvangi þessara fulltrúa er tekist á um
pólitísk deilumál og afl atkvæða látið ráða niðurstöðum um þau. Ríkisstjóm
sem situr í skjóli meirihluta á þingi fer með framkvæmdavald. Við þá sýslan er
aðeins ein regla heilög, að farið sé að lögum við meðferð valdsins. Dómstólar
fara svo með dómsvaldið. í því felst, eins og áður sagði, að leysa úr deilumálum
sem upp koma. Viðfangsefni dómstólanna eru takmörkuð að því leyti að þeir
1 Þann 26. maí 2000 héldu Lögmannafélag íslands og Dómarafélag íslands málþing í Hótel Valhöll
á Þingvöllum sem bar heitið „Stendur lýðræðinu ógn af dómstólum? - Um mat dómstóla á
stjómskipulegu gildi almennra laga“. Hér birtist erindi sem höfundur flutti á málþinginu.
143