Árbók Háskóla Íslands - 31.12.2000, Page 38
Samráðsnefnd um kjaramál
Samráðsnefnd um kjaramál er skipuð af háskólaráði. Hún tók fyrst til starfa 1990
og hefur það htutverk að tryggja samstarf og samráð við þau kjarafélög sem
starfsfólk Háskólans eru aðilar að. Frá árinu 1997 hefur nefndin einnig farið með
hlutverk aðlögunarnefndar stofnunarinnar vegna kjarasamninga og samstarfs-
nefnda eins og kveðið er á um í kjarasamningum. Nefndin er skipuð þremur
starfsmönnum Háskótans: háskótaritara. framkvæmdastjóra starfsmannasviðs
og Gísla Má Gíslasyni prófessor sem hefur verið formaður nefndarinnar frá hausti
1998. Tveir aðilar eru tilnefndir af því kjarafélagi sem til umfjöllunar er hverju
sinni. Hetstu verkefni samráðsnefndar á árinu einkenndust helst af nánari út-
færslu á ýmsum þáttum samkomulags aðlögunarnefndar Félags háskólakennara
og Háskólans. Þar ber helst að nefna að nýr stigakvarði vegna mats á vinnufram-
lagi lektora. dósenta, sérfræðinga. fræðimanna og vísindamanna var tekin í notk-
un og voru þessir starfshópar eindregið hvattir til að láta grunnmeta verk sín upp
á nýtt. Grunnmatið náði til ársins 1998 en launabreytingar, sem urðu við nýtt mat.
giltu frá 1. janúar 2000. í kjölfar gitdistöku nýs stigakvarða vegna kennslu. rann-
sókna og stjórnunar var samþykkt í samráðsnefnd. eftir að félagsfundur Félags
háskólakennara hafði samþykkt, að breyta stigakvarða vegna Vinnumatssjóðs á
sama veg. Gildir kvarðinn fyrir mat á rannsóknarframlagi frá árinu 1999 (5. gr.
vinnumatsreglna). Einnig var samþykkt að greiða vinnumat vegna stjórnunar í
einingum líkt og vinnumat vegna rannsókna.
Á árinu var ákveðið. með samþykki Ríkisbókhalds. að uppgjör kennara miðist við
almanaksárið. Við breytinguna miðaðist uppgjörstímabil í fyrsta skipti við tímabil-
ið 1. ágúst 1999 til ársloka 2000. Háskóladeildir sjá nú sjátfar um útreikning
kennsluáættana og uppgjör við fasta kennara.
í mars varsamþykkt að launaröðun stundakennara á föstum launum taki mið af
4. gr. samkomulags aðlögunarnefndar og var orðalagi þeirrar greinar breytt í:
„Forsendur röðunar starfa í stjórnsýslu. og við þjónusturannsóknir og stunda-
kennslu á föstum launum." í október voru forsendur röðunar stundakennara á
föstum launum síðan samþykktar en í þeim felst að við grunnröðun (B04) er
heimilt að meta: a) menntun til allt að þriggja launarima og b) rannsóknir og
kennslureynslu til allt að fjögurra launarima.
Á árinu var hafin vinna að matskerfi til handa félagsmönnum í Félagi íslenskra
náttúrufræðinga FÍN. Þessi vinna er þó enn á frumstigi en matskerfi FÍN hefur
ekki verið fyrir hendi fram að þessu. Aðlögunarsamkomulag FÍN við Háskólann
verður endurskoðað með nýjum kjarasamningum en kjarasamningar voru lausir
frá 1. nóvember 2000 líkt og samningar annars háskólamenntaðs starfsfólks hjá
Jafnréttismál
Jafnréttisnefnd Háskóla íslands
Jafnréttisnefnd Háskóla (slands tók til starfa í ársbyrjun 1998. Markmið hennar er
að koma á jafnri stöðu kynjanna á öllum sviðum meðal nemenda og starfsfólks
innan skólans. í nefndinni eiga sæti fimm kjörnir fulltrúar auk starfsmanns frá
starfsmannasviði og fulltrúa stúdenta. í fyrstu hefur hún lagt áherslu á að fram-
fylgja ákvæðum laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Meðal verk-
efna jafnréttisnefndar á árunum 2000-2004 er að móta stefnu og gera sérstaka
áætlun til að tryggja jafnstöðu þeirra sem teljast til minnihlutahópa við Háskóla
íslands.
Jafnréttisnefnd setur sér að markmiði að sjá um að upplýsingasöfnun og ganga-
vinnslu um jafnréttismál sé sinnt. Hún vill hafa frumkvæði að umræðu og
fræðslu, koma með ábendingar, veita ráðgjöf og umsagnir í málum sem varða
jafnrétti kynjanna. Nefndin fylgist með kynjahlutfalli við stöðuveitingar og skipanir
í nefndir og gerir athugasemdir við lög og reglugerðir í þeim tilgangi að koma
jafnréttissjónarmiðum að.
Jafnréttisáætlun
Jafnréttisnefnd lagði fram drög að jafnréttisáætlun Háskóla ístands á háskóla-
fundi 18. og 19. maí 2000. Áætlunin varsíðan samþykkt á fundi háskólaráðs þann
19. október. Jafnréttisáætlunin byggirá lögum nr. 96/2000 um jafna stöðu og jafn-
an rétt kvenna og karta og tekur mið af tillögum mitlifundanefndar háskólaráðs
um jafnréttismál frá 16. apríl 1997. í áætluninni felst viðurkenning á nauðsyn þess
34