Árbók Háskóla Íslands - 31.12.2000, Page 55
Sálfræðiskor stóð fyrir vikulegum málstofum á haustmisseri þarsem utanað-
komandi fræðimenn kynntu rannsóknir sínar. Reglubundnar málstofur voru
einnig haldnar á vegum félagsfræði og félagsráðgjafar.
Stofnun Hollvinafélags félagsvísindadeildar
Þann 1. desember var hatdinn stofnfundur Hotlvinafélags félagsvísindadeildar. Á
fundinum voru samþykkt lög félagsins og kosið í stjórn. Fundarstjóri varSigríður
Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Hollvinasamtaka Háskóla íslands. Á fundinum
ftuttu ávörp Jón Torfi Jónasson, forseti fétagsvísindadeildar. og Haraldur Ótafsson
prófessor. formaður undirbúningsnefndar. en hann var kjörinn formaður fétags-
ins. Með honum í stjórn voru kosnir Berglind Magnúsdóttir, Birna Kolbrún Gísla-
dóttir, Daði Einarsson. Eyrún María Rúnarsdóttir og Haltdór Grönvotd. Margrét
Litja Guðmundsdóttir var kosin varamaður. Markmið fétagsins er að auka tengst
félagsvísindadeildar við fyrrum nemendursína og aðra þá sem bera hag deildar-
innar og fétagsvísinda almennt fyrir brjósti svo og að styðja við kennslu og rann-
sóknir í félagsvísindum. Innan fétagsins starfa 11 samráðshópar úr kennslu-
greinum deildarinnar.
Opinberir fyrirlestran
Eftirfarandi fyrirtesarar fluttu opinbera fyrirlestra í boði fétagsvísindadeitdar á ár-
inu:
• 7. mars 2000. Carsten Bregenhöj. forstöðumaður þjóðháttadeitdar í Vasa.
Finnlandi: „Masks in Action - Nordic Christmas Mumming".
• 16. maí 2000. Jón Hnefilt Aðatsteinsson. prófessor í þjóðfræði: „Varðtokkur
Guðríðar Þorbjarnardóttur".
• 26. maí 2000. Christine Ingebritsen, prófessor í stjórnmátafræði við háskótann í
Washington í Seattle. „Norðurtöndin og samruni Evrópu".
• 26. maí 2000. Prófessor Arild Tjeldvotl við Háskólann í Osló: „Resistance to
Gobalization in Higher Education -Trends Report from a Case Study of the Un-
iversity of Oslo".
• 7. september 2000. Pertti Vakkari. prófessor í bókasafns- og upplýsingafræði
við háskólann íTampere: „NordlS-NET and Education for Research in Library
and Information Science in the Nordic Countries".
• 18. október 2000. Júri Atlik, prófessor í sátfræði við Háskótann í Tartu í Eist-
landi og deildarforseti fétagsvísindadeildar þess skóla. „Landafræði
persónuleikans".
Kennslumál
Guðfræðideild veitir kennslu tit embættisprófs í guðfræði auk B.A.-prófs í guð-
fræði og prófs í djáknafræðum. Annars vegar er um að ræða 90 eininga B.A.-nám
og hins vegar 30 eininga starfsnám til viðbótar við annað háskótanám. einkum á
sviði kennstu. félagsráðgjafar og hjúkrunar. Þá er í boði tveggja ára 60 eininga
meistaranám. M.A.-nám fyrir þá er lokið hafa B.A.-prófi í guðfræði og 30 eininga
meistaranám fyrir þá sem lokið hafa embættisprófi í guðfræði. Einnig er hægt að
stunda fjögurra ára nám tit doktorsprófs við deildina.
Starfsmenn
Á árinu 2000 störfuðu við guðfræðideitd 10 starfsmenn. 6 prófessorar (einn í leyfi
að hluta), 1 dósent. 2 lektorar (annar í htutastarfi) og skrifstofustjóri í hlutastarfi.
Hjalti Hugason prófessor var deildarforseti og Gunnlaugur A. Jónsson prófessor
varadeitdarforseti. Pétur Pétursson prófessor fékk teyfi frá starfi sínu að hluta ár-
ið 2001 til að gegna starfi rektors Skálholtsskóla.
Arnfríður Guðmundsdóttir var ráðin lektor í guðfræði með sérstakri áherslu á
kvennaguðfræði frá 1. janúar 2000. Hún er ráðin í tímabundið starf til tveggja ára.
Arnfríður Guðmundsdóttir er fyrsta konan sem er ráðin í starf lektors við guð-
fræðideild. Hluti kostnaðar við þessa lektorsstöðu er greiddur af þróunarfé rekt-
ors. Þá var sr. Kristján Valur Ingólfsson ráðinn í hálft starf lektors í litúrgískum
fræðum frá 1. febrúar 2000. Er það einnig tímabundin staða til tveggja ára. Þjóð-
kirkjan greiðir samkvæmt samningi milli guðfræðideildar og kirkjunnar htuta
kostnaðar við starf lektors í litúrgískum fræðum. Hér er um nýmæli að ræða,
bæði varðandi samninginn við þjóðkirkjuna og framlagið af þróunarfé rektors.