Árbók Háskóla Íslands - 31.12.2000, Page 88
Útgáfustarfsemi
Guðfræðistofnun átti áfram aðild að nýrri þýðingu Gamla testamentisins. Stofnun-
in gefur út tímaritið Ritröð Guðfræðistofnunar. Studia theologica islandica og enn
fremur gengst hún fyrir málstofu í guðfræði að jafnaði einu sinni í mánuði yfir
vetrartímann. í desember gekkst Guðfræðistofnun fyrir málþingi um guðfræði í
tilefni af kristnitökuári. Allir starfsmenn Guðfræðistofnunar hétdu fyrirtestra um
efni tengd sínum fræðasviðum. Háskólarektor stjórnaði málþinginu. Guðfræði-
stofnun hafði samvinnu við Bókmenntafræðistofnun Háskóla ístands um útgáfu á
Vísnabók Guðbrands og í maí átti stofnunin ásamt Árnastofnun. Bókmenntafræði-
stofnun og Skálholtsskóla aðitd að ráðstefnu í Skálholti um trúarteg stef í íslensk-
um fornbókmenntum.
Hafréttarstofnun íslands
Hlutverk og stjórn
Hafréttarstofnun Islands erein af yngstu rannsóknastofnunum Háskólans en hún
tók til starfa árið 1999. Hlutverk hennar er að annast rannsóknir og fræðslu á
sviði hafréttar. Stofnunin starfar í samvinnu við utanríkis- og sjávarútvegsráðu-
neytið og nýtur liðsinnis þeirra. (stjórn stofnunarinnar sitja Gunnar G. Schram
prófessor formaður. Sverrir Haukur Gunnlaugsson ráðuneytisstjóri. og Þorsteinn
Geirsson ráðuneytisstjóri. Varamenn eru Þorgeir Örlygsson ráðuneytisstjóri.
Tómas H. Heiðar þjóðréttarfræðingur og Kolbeinn Árnason lögfræðingur.
Ráðstefnur
Stofnunin gekkst fyrir alþjóðlegri ráðstefnu í Reykjavík dagana 13.-14. október
2000. Ráðstefnuefnið var „Landgrunnið og auðlindir þess." Fræðimenn og stjórn-
arerindrekar frá Bretlandi. Noregi. Færeyjum og Grænlandi fluttu fyrirlestra á
ráðstefnunni. auk íslenskra vísindamanna. Ráðstefnan var haldin í sal Þjóðmenn-
ingarhússins og var fjölsótt.
Útgáfu og kynningarstarfsemi
Fyrir stjórn stofnunarinnar lá á árinu beiðni um útgáfustyrk vegna væntanlegs rits
um hafrétt en ekkert slíkt rit hefur verið gefið út á íslensku. Á stjórnarfundi
skömmu eftir áramót samþykkti stjórnin að veita umbeðinn styrk. Þá var einnig
samþykkt af stjórn að veita tvo ríflega námsstyrki til ungra lögfræðinga til fram-
haldsnáms í hafrétti. Verði þeir veittir skömmu eftir áramótin 2000-2001.
Húsnæðismál
Háskólarektor ákvað á árinu að leigja stofnuninni herbergi 310 í Lögbergi fyrir
starfsemi sína. Mun stofnunin verða þartil húsa fyrst um sinn en leigusamning
er unnt að endurnýja árlega. Er mikilvægt að stofnunin hefur nú fengið fastan
samastað. Enn hefur ekki verið ráðinn starfsmaður stofnunarinnar en það verður
gert fljótlega á árinu 2001. Háskólinn veitti stofnuninni styrk vegna húsnæðisins
úr Háskólasjóði að upphæð 74.360 kr.
Samstarf
Undirbúin var fræðileg samvinna að einstökum verkefnum við sambærilegar
stofnanir erlendis. í Kanada, Bandaríkjunum og Hollandi.
Hagfræðistofnun
Starfsmanna- og fjármál
Á árinu 2000 voru unnin um fimmtán ársverk á stofnuninni. Vetta stofnunarinnar
var um 40 m.kr. sem er svipað og árið áður. Stofnunin og fastir starfsmenn henn-
arfengu rannsóknarstyrki frá Seðlabanka íslands. Rannís, fjármálaráðuneytinu.
forsætisráðuneytinu. Rannsóknarsjóði Háskólans, Evrópusambandinu, NORA,
Norrænu ráðherranefndinni, Norðurlandaráði. ríkisstjórn íslands. og Rannsókn-
arframlagi bankanna. Þrír nýir starfsmenn hófu störf á árinu. Ásgeir Jónsson
sneri heim frá framhaldsnámi í Bandaríkjunum og var hann ráðinn til að sinna
rannsóknum á peninga- og gengismálum. Sólveig F. Jóhannsdóttir var ráðin til að
sinna gerð kynslóðareikninga og jafnframt Guðrún M. Sigurðardóttir sem mun
sinna samgöngurannsóknum með námi.
84