Árbók Háskóla Íslands - 31.12.2000, Síða 94
innar. Við hlutverki hans að öðru leyti tók forstöðumaður Hugvísindastofnunar,
Jón Ólafsson, enda óhætt að segja að við flutning skrifstofu Bókmenntafræði-
stofnunar um mitt ár úr Árnagarði yfir í Nýja-Garð hafi þessar tvær stofnanir
færst hvor nær annarri.
Útgáfustarfsemi á árinu
Sem fyrr beindist starfsemin einkum að bókaútgáfu og komu út tvær bækun Trú í
sögum. Um heiðni og kristni í sögum og samtíma Gunnars Gunnarssonar eftir
Höllu Kjartansdóttur. Þetta er 56. bindið í ritröðinni Studia Islandica. og er ritstjóri
hennar Vésteinn Ótason. Þá kom út þriðja bindið í ritröðinni Ungum fræðum þar
sem gefnar eru út framúrskarandi B.A.-ritgerðir. og varð fyrir valinu að þessu
sinni Maður undir himni. Trú í Ijóðum ísaks Harðarsonar eftir Andra Snæ Magna-
son.
Þá var unnið að útgáfu annarra verka, sem eiga eftir að koma út síðar. og má þar
nefna Vísnabók Guðbrands í umsjá Jóns Torfasonar og Kristjáns Eiríkssonar og
Bókmenntavísi sem nemendur í bókmenntum hafa unnið að fyrir styrk úr
Nýsköpunarsjóði undir stjórn Garðars Baldvinssonar. Verkið hefur loks komist á
rekspöl á þessu ári. einkum eftir að Garðar gerði á því úttekt sem getur orðið
grundvöllur að frekari styrkveitingum og árangursríku starfi í kjölfar þeirra.
Heimspekistofnun
Forstöðumaður Heimspekistofnunar 2000 var Gunnar Harðarson. Helsta verkið
sem unnið hefur verið að árið 2000 hjá Heimspekistofnun er vinna að útgáfu rits-
ins Lífþróun eftir Björgu C. Þorláksdóttur og annaðist Kristín Þóra Harðardóttir
það verkefni. Útgáfu á safnritinu Hvað er heimspeki? sem unnið er af nemendum
í heimspeki, var frestað. en á móti styrkti stofnunin útgáfu ritsins Ógöngur eftir
Gilbert Ryle. sem út kom sem Lærdómsrit Bókmenntafétagsins. Þá átti Heim-
spekistofnun samstarf við Félag áhugamanna um heimspeki um útgáfu heim-
spekitímaritsins Hugur. Heimspekistofnun kom að ýmsum öðrum verkefnum svo
sem þróun á heimspekivef. en sú vinna er á frumstigi, og vef um B.A.-ritgerðir.
Einnig átti Heimspekistofnun aðitd að mátþingi um heimspeki og ævisögur sem
haldið var í samvinnu við ReykjavíkurAkademíuna, og styrkti komu James Con-
ants. prófessors í Chicago, og Ray Monks, prófessors í Southampton, til landsins.
James Conant fékk húsnæði stofnunarinnar til afnota á vormisseri en Eyja Mar-
grét Brynjarsdóttir á haustmisseri.
Málvísindastofnun
Almennt yfirlit
Hlutverk Málvísindastofnunar er að annast rannsóknir í íslenskum og atmennum
málvísindum. Einnig gefur stofnunin út fræðirit í mátvísindum og gengst fyrir ráð-
stefnum og námskeiðum. Auk þess tekur stofnunin að sér. gegn gjaldi. ýmiss
konar þjónustuverkefni sem lúta að málfræði og málfari. svo sem prófarkalestur
og frágang á textum. Stofnunin er til húsa í Nýja-Garði í húsnæði Hugvísinda-
stofnunar. Heimasíða stofnunarinnar ertengd við heimasíðu Háskólans (undir
„Stofnanir") en stóðin er annars www.hi.is/pub/malvis
Stjórn Málvísindastofnunar skipuðu Magnús Snædal dósent, forstöðumaður. Sig-
ríður Sigurjónsdóttir dósent. meðstjórnandi og Hatlgrímur J. Ámundason (fyrri
hluta árs) og Jóhannes Bjarni Sigtryggsson (síðari hluta árs) fulttrúar stúdenta,
ritarar. Starfsmenn voru Ástaug J. Marinósdóttir framkvæmdastjóri. en henni var
um mitt ár veitt launalaust leyfi í tvö ár og var Birgitta Bragadóttir ráðin í hennar
stað. Jóhannes Bjarni Sigtryggsson. hlutastarf (40%) janúar-febrúar. Einar Sig-
marsson, hlutastarf (50%) júní-júlí.
Rannsóknir
• Athugun á C-gerð Hálfdanar sögu Brönufóstra. Stofnunin styrkti þetta verkefni
með því að greiða umsjónarmanni, Jóhannesi Bjarna Sigtryggssyni. laun í einn
mánuð.
• Langsniðsathugun á máti íslensks barns. Stofnunin styrkti þetta verkefni með
því að greiða laun aðstoðarmanns í einn og hálfan mánuð. Lokið var við að
skrá efni af segulbandi og koma þeim gögnum á tölvutækt form.
Umsjónarmaður verkefnisins er Sigríður Sigurjónsdóttir.
90