Árbók Háskóla Íslands - 31.12.2000, Page 147
fyrir aðila innan og utan Háskóla íslands voru u.þ.b. 7. Auk þessa sinnir útgáfan
ýmsum smáverkefnum, s.s. bæklingagerð. fréttabréfum og smáprenti fyrir fjötda
aðila ár hvert.
Stafræn prentun eða tjósritun hefur getið af sér breytt fyrirkomulag í framleiðslu
bóka á sl. ári. Tæknin felur í sér að nú er hægt að framleiða bækur í minna upp-
lagi en áður án þess að einingaverð þeirra hækki. Jafnframt býður hún upp á að
hægt sé að panta viðbótareintök eftir þörfum og spara þannig lagerhald. Víst er
að þetta nýja fyrirkomulag mun falla mjög vel að þörfum háskólafólks í útgáfu-
málum í framtíðinni.
Af þeirri reynslu. sem fengin er af rekstri útgáfunnar sl. 12 ár. er Ijóst að staða
hennar innan stjórnkerfisins er fremur óljós en hún er nú rekin sem deild á
kennslusviði og æðsti yfirmaður hennar því framkvæmdastjóri þess. Jafnframt
lýtur hún stjóm háskólaráðs sem skipar stjórn hennar. Háskólaútgáfunni hefur
vaxið mjög fiskur um hrygg og umfang henna síst minna en margra stofnana Há-
skólans. Stjórn útgáfunnar telur að með tilliti til stöðu útgáfunnar út á við á markaði
sé vænlegra að henni verði breytti í sjálfstæða stofnun en reikningshald hennar
verði þó áfram hluti af reikningshaldi Háskólans. Á sl. hausti var því tögð fyrir há-
skólaráð tillaga þess efnis að útgáfan verði gerð að sjálfstæðri stofnun með eigin
reglugerð og að hún heyri framvegis undir þjónustustofnanir Háskólans. Jafnframt
voru lagðar fyrir háskólaráð tillögu þess efnis að hafinn verði undirbúningur þess
að taka upp ritrýni þeirra bóka sem út koma á vegum hennar. Þessar tillögur og
drög að reglugerð fyrir útgáfuna bíða nú afgreiðslu háskólaráðs.
Bóksala ársins nam tæplega 40 m.kr. og er það talsverð aukning frá fyrra ári.
Fjöldi seldra titla var um 14.000. Fastir starfsmenn eru þrír.
Hollvinasamtök Háskóla
Almennt
Starfsár Hollvinasamtaka Háskóla íslands stendurfrá 1. desember til jafnlengdar
næsta ár og miðast eftirfarandi yfirlit við það. Aðalfundur Hollvinasamtakanna var
haldinn 1. desember 1999 og fóru þarfram hefðbundin aðalfundarstörf. Ekki
þurfti að kjósa í stjórn þar eð kjörtímabil stjórnar er tvö ár. í stjórninni sitja: Ragn-
hildur Hjaltadóttir formaður, Sigmundur Guðbjarnarson varaformaður. Bjarni Ár-
mannsson gjatdkeri, Kjartan Örn Ótafsson og Steingrímur Hermannsson með-
stjórnendur og María E. Ingvadóttir varamaður. Sigmundur Guðbjarnarson er
kjörinn af háskólaráði og Kjartan Örn Ólafsson af Stúdentaráði Háskóla íslands.
Kjartan Örn óskaði eftir því að láta af stjórnarstörfum á árinu og við tók Haukur
Þór Hannesson. Með stjórninni hafa einnig starfað formenn Stúdentaráðs. Finnur
Beck og Eiríkur Jónsson. svo og futltrúi rektors, Jörundur Guðmundsson. Fram-
kvæmdastjóri Hollvinasamtakanna er Sigríður Stefánsdóttir. Á árinu bættist eitt
hollvinafélag í hópinn þegar Hollvinafélag félagsvísindadeildar var stofnað 1. des-
ember.
Stjómarstörf
Stjórnin heldur regtulega stjórnarfundi. Milli þeirra hafa einkum formaður og
framkvæmdastjóri átt fundi með einstökum hollvinafélögum. aðilum sem vilja
kynna sér starfsemi samtakanna eða leggja að þeim í fjáröftun og innra starfi.
Fulltrúaráð Hollvinasamtakanna kom saman í Skólabæ hinn 17. febrúar 2000 og
skiptust ráðsliðará upptýsingum og hugmyndum að starfi hollvinafélaga.
Hollvinafélögin
Starfsemi margra holtvinafélaga var mjög öflug á árinu. Félagsmenn nutu
fræðslu og samræðu á málþingum og fundum, deitdum voru færðar góðar gjafir,
kandídatar verðtaunaðir. svo fátt eitt sé nefnt. Á engan er hatlað þótt sérstaklega
sé minnst á einstakt starf Holtvinafélags tagadeildar sem hefur staðið að veruteg-
um endurbótum á tækjabúnaði deildarinnar.
Homsteinar
Á árinu 2000 var í fyrsta skipti farin sú leið að afta Hollvinasamtökunum svo-
nefndra hornsteina. Þrjú fyrirtæki gengu til liðs við Hotlvinasamtökin og lögðu
fram ákveðna upphæð tit rekstrarins. Fyrirtækin eru Flugfélag íslands. Landsbanki