Búnaðarrit - 01.01.1895, Blaðsíða 129
125
að vorkfærin eru óhentug og í laklegu standi, sem unn-
ið er með, þá gengur vinnan miklu ver, og verkið verð-
ur lakar af hendi leyst en ella. Þar að auki er það
erflðara að nota þau áhöld, sem illa eru gerð, og ekki
eiga við það starf, sem unnið cr með þeim. Það hefur
því mjög mikla þýðingu, að nægilegt sje til af nauðsyn-
legum verkfærum á hverju heimili, og að þau sje jafn-
an höfð í góðu standi.
Yerkfærum þeim, sem uotuð eru við ræktun og
yrkingu jarðarinnar, má skipta í tvent: akverkfæri og
handverlcfæri.
I. Akverkfæri.
Þannig nofnast þau verkfæri, sem hestum og naut-
um er beitt fyrir hjer á landi, svo sem vagn, plógur,
herfi og fl. Eru þessi verkfæri helzt til lítið notuð hjer
á landi, og eiga þau tiltölulega fáir. Reyndar eru flest
þeirra svo dýr, að mörgum einstökum manni er um
megn að eignast þau, en þá ættu fleiri að eiga þau
saman í fjclagi, og nota þau svo á víxl eptir hentug-
leikum. Búnaðarfjelögin ættu að eiga öll helztu jarð-
yrkjuverkfæri, sem hjer koma að notum, og einstakling-
um er um megn að eignast, lána þau svo fjelagsmönn-
um, ef þeir æskja, með þeim skilmála, er um semur.
Hjer skulu nefnd hin helztu þeirra:
1. Plögur cr þegar orðinn töluvert þektur hjer á landi,
en þó eigi mikið notaður enn sem komið er. Ætlunar-
verk hans er að rífa sundur jarðveginn, losa hann og
jafna, svo jurtirnar eigi hægra með að festa rætur sínar,
þróast og vaxa. Hann er injög gamalt verkfæri, jafn
gamall akuryrkjunni, en hetir tekið breytingum mjög til
batnaðar í seinni tíð. Góður plógur þarf að hafa þessa
kosti: 1. Að hann sje ljettur og gott að stjórna hon-