Búnaðarrit - 01.01.1895, Blaðsíða 130
126
um. 2. Að hann velti vel af sjer eða frá sjer, og geri
lireint far. 3. Að hægt sje að láta hann rista bæði
djúpt og grunt, eptir því er við á. 4. Að hægt sje að
taka hann sundur og setja aptur saman; kemur það sjer
vel cf þarf að flytja hann langt til úr einum stað á
annan, og eins ef að þarf að skipta um einstaka hluta
hans eða parta, t. d., ef eitthvað bilar og annað er
sett í staðinn. 5. Að hann sje yfir höfuð vel gerður,
sterkur, en þó eigi oferfiður, og komi að tilætluðum
notum.
Plógar eru með ýmsri gerð og lagi, og nefnast ept-
ir því ýmsum nöfnum, svo sem sveiflu-plógur, /yóZ-plóg-
ur, djúpfars-plógur o. s. frv. Sveijiu-\ðí)"wr mun vera
einna hentugastur fyrir oss; kostar hann í Noregi 40—
50 kr. Torfi Bjarnason í Ólafsdal smíðar járnplóga
hentuga við þúfnasljettun, og hæfilega þunga fyrir vora
hesta. Selur hann þá á 40 krónur. Fyrir plóg er vana-
lega beitt tveimur hestum.
2. Herfi. Það er notað eptir að búið er að plægja.
Tilgangur með herfingunni er sá, að jafna moldina ept-
ir plæginguna, að mylja hana og samblanda aðfluttum
efnum, t. d. áburði. Það eru til gadda-havii og hlelclcja-
herfi; þau eru ýmist einföld eða samsett (tvöföld). Gadda-
herfi eru notuð við þúfnasljettun, og til þess að jafna
og mylja mold í sáðreitum. Herfa má bæði flög í tún-
um og sáðreiti, þó eigi hafi þeir verið plægðir, heldur
að eins stungnir upp með skóflu. Herfi er mjög gagn-
legt verkfæri eigi síður en plógurinn. Fyrir herfinu
gengur stunduni einn hestur. Torfi í Ólafsdal selur
einföld Jierfi á 16 kr. Eru þessi herfi Torfa hentug
hjer. Þyki þau ofljctt við hcrfinguna, má auðveldlega
þyngja þau með einhverju, t. d. grjóti. HleJcJcjahe>Ti eru