Búnaðarrit - 01.01.1895, Blaðsíða 136
132
burt taði eða áburði frá peningshúsum, þegar stutt cr
að íiytja, o. s. frv. Einnig er opt þægilegt að aka í
þcim, t. d. mold, grjóti, rofi, og öðru þesskonar, þegar
vagni verður ekki komið við eða mjög stutt or að aka.
Og sje engin kerra til, þá er þó miklu betra að eiga
hjólbörur en ekki, því þær bæta nokkuð úr vagnleysinu,
að því er einstök vcrk snertir. — Hjólbörur geta marg-
ir smíðað, og ættu menn því að efna sjer til þeirra. Torfi
í Ólafsdal hefir smíðað þær og selt á 14 kr.
2. Sk'ofla er svo alþekt verkfæri, að engin þörf er
á því aðj vera margorður um hana. En þótt hún sje
alþekt og ómissandi á hverju heimili, þá vantar þó á,
að hún sje alstaðar í svo góðu lagi sem vera skyldi.
Yíða er ekki til skófla, nema að eins að nafninu, ein-
hver lítilfjörlogur spaði, sem tæplcga er hægt að nota
til að moka með fjósflór, og því síður að hún verði höfð
til annars. En þó eigi ekki að gera annað en moka
mold upp í vegg eða stinga hnaus, þá er samt betra
að skóflan sje í lagi. Pað virðist því sem ekki ætti
að þurfa að áminna menn um að eiga brúkanlega skóflu
í hendina á sjer, skóflu, sem hægt er að vinna fult
verk með. — Skóflur eru með ýmsri gerð, og kosta
nokkuð mismunandi; vanalegt verð er 2—3 kr. Skóflur
þær, sem notaðar eru við vegagerð hjer sunnanlands,
kosta um 3 kr.; eru þær að flestu leyti betri en þess-
ar algengu búðarskóflur. Frá Noregi má panta skóflur
úr þunnum stálplötum, sem eru Ijettar og gott að vinna
með; þær kosta með innkaupsverði 2 kr.
3. Moldskbfla er einkum notuð til þess að moka
með lausri mold, mykju, foraráburði o. s. frv. Er hún
hentugri til þess en vanaleg skófla, því hún tekur
meira og rennur síður af henni. Moldskóflan (eða skúff-
an) er með lengra skapti en skófla, og blaðið stærra