Hugur - 01.01.1991, Qupperneq 98
96
Ágúst Hjörtur Ingþórsson
HUGUR
hagsmálum, en það sem er verst af öllu, vélvæðingu í hugsun.
Jámbúrið sem mennirnir eru að læsast inni í, táknar helsi bæði á ytra
og innra borði. Á ytra borði birtist það í takmörkunum á raun-
verulegum kostum til athafna; á innra borði í firringu og undanhaldi
þess sem við köllum stundum hið andlega.
Þetta óttaðist Weber og fyrir þessa greiningu er hann að réttu
frægur. í löngu máli og með mörgum dæmum styður hann þá skoðun
sína að framsókn skynseminnar leiði til þess að einstaklingamir eigi
sífellt meira í vök að verjast gagnvart yfirgangi þessa Rechen-
haftigkeit, sem áðan var þýtt sem reikniskynsemi, en allt eins má
kalla reiknipúkann. Frumleiki, sköpunargáfa og annað sem við teljum
gjarnan mikilvægt mannlegu lífi má sín lítils gagnvart reiknipúka-
num. Og hvers vegna? Jú vegna þess að hann er sjálf skynsemin
holdi klædd — og það allt samkvæmt hringavitlausri skilgreiningu!
Það sem meira er, segir Weber, reiknipúkinn nær árangri langt
framyfir það sem öðrum uppvakningum mannsins hefur tekist hingað
til. Það er sama hvar borið er niður; í vísindum, iðnaði, verslun,
trúmálum, stjórnmálum. Það skipulag sem einkennist af belli-
brögðum reiknipúkans er skilvirkt og þjónar þannig markmiðum
mannsins, hver sem þau kunna að vera, betur en önnur skipulags-
form.
Hér er margt málum blandið og líklega hefur Habermas rétt fyrir
sér í því að undirrót einkennilegheitanna sé að finna í tvíræðri notkun
Webers á „framsókn skynseminnar“ — þar sem hann hleypur milli
þess að tala um einstaklinga og samfélag svo oft er erfitt að henda
reiður á um hvað greiningin snýst. Rechenhaftigkeit, reiknipúkinn,
virðist þó vera einhver illur andi sem hefur heltekið vestrænt sam-
félag og herjar af miklum móð á íbúa þess. Kannski þar sé kominn
afturgenginn í púkalíki hinn algildi Andi Hegels? Allavega eiga der
Absoluter Geist og Rechenhaftigkeit það sameiginlegt að hafa öðlast
sjálfstætt líf:
Þinn draumur býr þeim mikla mætti yfir
að mynda sjálfstætt líf, sem ógnar þér.
Hann vex á milli þín og þess, sem lifir,
og þó er engum ljóst, hvað milli ber.