Búnaðarrit - 01.01.1923, Blaðsíða 116
100
BÚNAÐAitilIT
Sje túnþýfi tætt að haustinu, er flagið láuð liggja
óhreyft yfir veturinn. Snemma næsta vor er borinn á
tiibúinn áburður, 400 kg. superfosfat og 100 kg. kalí á
ha, og flagið herfað. Svo er sáð korni, 120 kg. á ha.,
og það herfað niður. Loks er borið á 250 kg. Noregs-
saltpjetur á ha., og flagið valtað. Áframhald ræktunar-
innar verður eins og á vortætta landinu.
Verði ekki hjá því komist, að tæta túnþýflð á miðju
sumri, er best að valta flagið strax, og bera á búfjár-
eða safnhauga-áburð, 120 hlöss eða ineir á ha. Um
haustið er ekki vert að slá sijettuna, þó eitthvað sje
upp úr henni. Næsta vor er borinn á tilbúinn áburður,
og valtað. Má þá bera á 200 kg. superfosfat, 100 kg.
kalí og 200 kg. Noregs-saltpjetur. Superfosfatið og kalíið
snemma, og saltpjeturinn síðar, eins og áður er sagt.
Um haustið er borinn á búfjár-áburður. Siðan er sljettan
hirt sem aðrar sljettur, nema hvað hún er völtuð á
vorin, meðan þurfa þykir. Sumartæt.ta landið verður
tæplega fullgróið fyr en á þriðja sumri. Tapast því eins
árs eftirtekja af því að miklu leyti. Jeg geri ráð fyrir
að það sje slegið um sumarið, áður en það er tætt.
Af vor- og haust-tætta landinu tapast lítil eða engin
eftirtekja. Vegur korngrasið vanalega fyllilega á móti
því, sem ávant verður um töðufenginn.
(Srasmóur. Góðir grasmóar utan túns er það land, sem
flestir bændur munu leggja fyrst í að rækta,
ef þeir eiga þess vöJ. Grasmóarnir eru vel falluir til
vjelavinslu, nema þeir sjeu mjög stórþýfðir. Meðalhæð
þýfisins má eigi vera meira en 50 cm., sje það hærra
verður að stinga ofan af hæstu þúfunum, áður en landið
er tætt. En góðir grasmóar eru vanalega ekki mjög
stórþýfðir; þýfið er krappt og jafnt, og gróðurinn þjettur
og samfeldur. Ber Jítið á mosa í þúfunum, og hvergi
vottar fyrir flagi eða uppblástri. Sje þýfið stærra og
misjafnt, gætir mosans vanalega meira, og uppblásnir