Búnaðarrit - 01.01.1923, Blaðsíða 171
BÚNAÐARRIT
Ull.
Það er talið að sauðfjeð sje jafnvel hinn fyrsti bú-
peningur, sem maðurinn hefir haft undir hendi, og í
fyrstu sögum mannkynsins er ullin talin nauðsynleg
vara. Tóvinnan er og jafngömul sögunum, þótt ullar-
verksmiðjur sjeu ekki stofnsettar fyr en löngu siðar.
England, sem er mesta ullariðnaðarland í heimi, kom
fyrst á stofn ullar-verkstæðum árið 1300, sem þó voru
ófullkomin, en hafa smátt og smátt fullkomnast til þess,
sem nú er orðið. Nú er ullarverslun og ullariðnaður
eitt mesta starfið, sem þjóðirnar hafa með höndum.
Það er og mikilvægl starf að meta ullina eftir gæðum,
og fer verðið á hverri tegund eftir því.
Óvíða mun ullarmati vera eins háttað og hjer á landi,
sem miðast við það, hvað ullin er hrein, greið og hvít.
Það er meira vandað til matsins, og hvert reifi aðskilið
eftir gæðum, sem eru ólík, eftir því hvar er á skrokk
kindarinnar. Einnig er aðskilin ull af eldra fje og yngra.
fess skal getið, að þar sem matið er á þann hátt, að
hverju reiö er skift í marga hluta, þá er sú ull ætluð í
fínni. tóvöru en hægt er að vinna úr ullinni okkar; en
hitt ætti að geta samrýmst okkar mati, að aðskilja
ull af yngra fje og eldra. Einkum þó þegar menn fara
að leggja stund á, að bæta hjer ullina á íjenu, en það
er lítið sem ekkert á veg komið enn þá.
í „Búnaðarritinu" 31. ár, I.—II. hefti, heö jeg ritað
all-ítarlega grein um ull. Þar er talað um verðmæti