Búnaðarrit - 01.01.1923, Blaðsíða 133
BtiNAÐAEEIT
1] 7
þúfnabana, sem þegar hafa verið keyptir af Búnaðar-
fjelagi Islands, greiðist úr Ræktunarsjóði, en það, sem
útistandandi er fyrir vinnu þeirra, rennur í Vjelasjóð, og
er fyrsti vísir hans.
IV. kafli.
Um jarðræktarlán.
20. gr.
Ríkisveðbankinn má eigi lána fje Ræktunarsjóðsins
eða Kirkjujarðasjóðsins til annars en landbúnaðar, og
má eigi lána minna en */a til jarðræktar úr þeim, enda
sje reikningum sjóða þessara jafnan haldið út af fyrir sig.
21. gr.
Vextir af lánum til jarðræktar, sem Veitt eru sam-
kvæmt 20. gr., mega ekki hærri vera en 4 af hundraði
á ári, og lánstíminn eigi skemmri en 20 ár, og lánin
afborgunarlaus 4 fyrstu árin.
22. gr.
Ríkisveðbankanum er heimilt að veita lán til alls-
konar jarðabóta, en jafnan skal það skilyrði sett, að lán-
takandi leggi fram til hinna umræddu jarðabóta sem
svarar ^/s kostnaðar við þær, auk styrks, sem kann að
fást til þeirra. Alt að helmingi slíkra lána má greiða
strax, en afganginn ekki fyr en verkinu er lokið. Ef um
stærri fyrirtæki er að ræða, má þó greiða lánið i fleiri
hlutum jafnóðum og verkinu miðar áfram, eftir því sem
Búnaðarfjelag íslands telur hæfllegt.
23. gr.
Ríkisveðbankinn má eigi veita nein lán til jarðræktar,
nerna Búnaðarfjelag íslands leggi með því, og hafi sam-
Þykt kostnaðaráætlun, sem jafnan skal fylgja slíkum