Búnaðarrit - 01.01.1923, Blaðsíða 132
116
BTÍNAÐARRIT
kaupa og starfrækja jarðræktarvjelar, svo sem þúfna-
bana, skurðgröfur og aðrar stærri nýtískuvjelar, sem eru
við hæfl hjer á landi. Atvinnumálaráðuneytið sker úr
því árlega, að fengnum tillögum Búnaðarfjelags íslands,
hvort og hverjar vjelar skuli keyptar.
16. gr.
Búnaðarijelag íslands sjer um starfrækslu vjela þeirra,
sem keyptar eru samkvæmt 15. gr., og ákveður, að
fengnu samþykki atvinnumálaráðuneytisins, hvar unnið
skuli með þeim á ári hverju. Kostnaðinn af starfræksl-
unni greiða þeir, sem unnið er fyrir; en heimilt er þó,
ef vinnukaupandi óskar þess, og að áliti Búnaðarfjeiags
íslands þarf þess með, að lána honum vinnukostnaðinn,
gegn fullnægjandi tryggingu; og endurgreiðast lán þessi
og ávaxtast eftir þeim reglum, sem nú gilda um jarð-
ræktarlán úr Ræktunarsjóði.
17. gr.
Ríkisveðbankinn hefir á hendi iunheimtu lána þeirra,
er í 16. gr. getur, og skulu vextir og afborganir renna
í sjerstakan sjóð, er nefnist „Vjelasjóður". Markmið
þessa sjóðs er að kaupa og starfrækja landbúnaðarvjelar.
Ef ríkisveðbankinn verður eigi tekinn til starfa, áður
en innheimta þarf vexti eða afborganir af lánum þess-
um, heflr Búnaðarfjelag íslands innheimtuna á hendi,
þar til bankinn tekur til starfa,
18. gr.
Með reglugerð, sem sett er eins og segir í 7. gr.,
skal kveða á um tryggingar fyrir lánum þeim, sem í 16.
gr. getur, og annað er þau snertir. Ennfremur skal á
sama hátt setja reglur um Vjelasjóðinn.
19. gr.
Andvirði og áfallinn rekstrarkostnaður þeirra tveggja