Dvöl - 01.04.1940, Qupperneq 27

Dvöl - 01.04.1940, Qupperneq 27
D VÖL ekki þvert yfir veg hennar. Þá mátti við ýmsu búast. Jaröskjálft- ar, eldgos, hvirfilbyljir og flóð- bylgjur mundu geisa yfir jörðina með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. — Þannig var spá hins margþráða stærðfræðings. Pjarri fór því, að allir íbúar jarð- arinnar væru lostnir skelfingu vegna þessarar stjörnu. Níu af hverjum tíu stunduðu atvinnu sína eins og ekkert hefði í skorizt. Blöð- in minntu á gamla falsspádóma um heimsendi. Stjarnan væri raun- verulega ekkert annað en glóandi lofttegundir — einskonar hala- stjarna — og gæti alls ekki rekizt á jörðina. í sögu himingeimsins væru engin slík fordæmi kunn. Heilbrigð skynsemi var vongóð og þétt fyrir, jafnvel dálítið nöpur og kaldhæðin í baráttunni við óttann. Þá um kvöldið, kl. 7.15, mundi stjarnan verða næst Júpíter. Þá mundi heimurinn fá fullvissu um, hvert stefndi. Og þá hljóðnuðu hlátrarnir. Stjarnan óx — hún óx með hræði- legum stöðugleik klukkutíma eftir klukkutíma, stærri, ferlegri og bjartari, þangað til hún hafði breytt nóttinni sjálfri í dag. Næsta kvöld reis hún í tunglsstærð yfir Ameríku, og hún var blindandi hvítbjört og heit. Hlýr andvari breyttist skjótt í storm með vax- andi krafti, og yfir Vírginíum, Brazilíu og St. Lawrencedalnum glampaði hin hvíta stjarna í ógn- andi rofi rekandi þrumuskýja og 105 bláhvítu leiftri eldinganna. — í Manitoba urðu skyndilegar hlákur með miklum vatnavöxtum. Jöklar og fannbreiður tóku að bráðna um allan heim, og lækir og ár brutust fram af beljandi krafti með upprif- in tré, húsflök og drukknaða menn og skepnur í ólgandi hringiðum. Og árnar og fljótin uxu. Þau belj- uðu yfir bakka, þau dýpkuðu og dýpkuðu og brunuðu fram á eftir flýjandi og dauðadæmdum íbúum borga og þorpa á sléttum og í döl- um. Á ströndum landanna við Suður- Atlantshafið urðu sjávarföll meiri en dæmi voru til, og stormarnir þeystu flóðbylgjum inn yfir löndin og drekktu heilum borgum. Svo sterkur varð hitinn á þeirri nóttu, að þegar sólin reis að morgni var hún líkust fölum skugga. Þá hóf- ust jarðskjálftarnir. Um endilanga Ameríku, frá Alaska til Eldlands- eyja tóku skriður að hrynja úr fjöllum, jörðin rifnaði á stórum svæðum og lagðist í fellingar og hús og mannvirki féllu til grunna. Og þannig hvarf stjarnan vestur yfir Kyrrahafið, ásamt fölnandi tunglinu, en slóði hennar voru geisandi þrumuveður, eldingar, jarðskjálftar og flóðbylgjur, sem beljuðu hvítfyssandi vestur yfir hið breiða haf, yfir eyjar og sund, og með feril dauðans að baki sér. Að síðustu — í blindandi birtu og stormi, sem var heitur eins og af báli stæði — brunaði fimmtíu feta há flóðbylgja upp að ströndum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Dvöl

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.