Dvöl - 01.04.1940, Blaðsíða 32

Dvöl - 01.04.1940, Blaðsíða 32
110 DVÖL „Eigi er þat,“ segir Skarphéðinn, „því at þeir mega aldrei sækja oss að landslögum.“ „Þá mun þat fram koma,“ segir Njáll, „er öllum mun verst gegna.“ Með þessu gefur hann ótvírætt í skyn, að Flosi og menn hans muni einskis svífast, muni engin meðul láta ónotuð til þess að geta náð fram hefndum. Þegar vér lesum um fund Flosa og manna hans í Almannagjá, verður sama uppi á teningnum. Eftir að þeir höfðu bundizt eiðum um hefndina, mælti Flosi á þessa leið: „Mun ek nú ok segja yður alla mína fyrir- ætlan, at þá er vér komum þar saman, skulum vér ríða til Berg- þórshvols með öllu liðinu ok sækja Njálssonu með eldi ok járni, og ganga eigi fyrr frá en þeir eru allir dauðir.“ — Hér styður bersýnilega hvað annað. En eins og kunnugt er, skarst Ingjaldur frá Keldum úr þessum leik. Meira að segja fóru síðar þær orðsendingar milli hans og Njáls. Af öllu þessu verður því naumast annað ráðið, en að ó- hugsandi sé að Njáll hafi ekkert hugboð haft um það, sem áformað og í vændum var gagnvart honum og sonum hans. Næst vil ég svo leiða athyglina að því, er brennan er hafin. „Þeir tóku nú eld og gerðu bál mikit fyrir durunum.“ Flosi og menn hans ganga rösklega að því að kveikja eldinn, og ætlast auðsýnilega til, að hann muni fljótt skera úr. En raunin verður allt önnur. Þeim tekst ekki til lengdar að halda uppi eldinum, hversu mjög sem þeir leggja sig fram til þess. Konur báru sýru, vatn og hland í eldinn og slökktu niður fyrir þeim. Bær- inn virðist hafa verið einkennilega ríkur af meðulum eldi til varnar. Það út af fyrir sig, að vatn hafi verið geymt í stórum stíl innan bæjar á þessum tíma árs, er mjög ólíklegt, nema í ákveðnum til- gangi hafi verið gert. Svo áberandi og áhrifarík eru þessi varnarmeð- ul, að brennumenn fá við ekkert ráðið. Hið mikla bál er kæft 1 höndum þeirra, og þeir virðast ráð- þrota um stund.. En loft var í skálanum á þvertrjám, að því er sagan hermir, Þangað datt Kol Þorsteinssyni í hug að láta bera eldinn og kveikja við arfasátu þá, er stóð fyrir ofan bæinn. Þetta ráð sker algjörlega úr um fram- gang brennunnar. Varnarmeðulun- um innan frá verður nú skiljanlega ekki lengur beitt að gagni, jafnvel þótt næg kynnu að vera fyrir hendi. Þeir, sem inni eru, finna og eigi fyrr en ofan logar allur skál- inn. Arfasátan verður þannig brennumönnum að fljótu og góðu liði, og kemur það vel heim við allan ýmigust sögunnar á henni. Af þessu virðist mér mega ráða það, að vörnin hafi verið hugsuð og undirbúin fyrirfram og aðeins yf- irbugast af hinu slynga ráði Kols Þorsteinssonar. Margir liggja Njáli á hálsi fyrir það, að hafa ekki látið lið sitt, sem var samtals nær 30 manns, mæta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.