Dvöl - 01.04.1940, Page 41

Dvöl - 01.04.1940, Page 41
DVÖL 119 á undan mér eftir mjóa land- göngutrénu. „ÞaS var svei mér kominn tími til þess aS þú kæmir, María!“ Ég heyri, að karlinn spýtir í ána. Umhverfis hann er mökkur tó- baksreyks. Hann tekur þegjandi i hönd mína og við klifum niður stigann, niður í káetuna. Móðir Maríu situr við borðið og starir á okkur tómu augnaráði. Beiglaður olíulampinn ósar í sífellu. Á borð- inu eru kartöflur og klútur breidd- ur yfir þær til að halda þeim heitum. Á þilinu hangir mynd af hvítum engli með bústnar kinnar. Hún er í svörtum ramma með myrtuslaufaútskurði. Fyrir neðan hana hangir reykjarpípa úr tré og dinglar fram og aftur í sífellu. María sezt niður, tekur kartöflu og byrjar að afhýða hana. Augu hennar eru hlý og brún. Gamla konan lætur á borðið leirpott með viðsmjöri. Hún stingur nöglinni á einum fingrinum í kartöflu, af- hýðir hana og dýfir henni í við- smjörið. Gamli maðurinn afhýðir ekki sínar kartöflur. Hann stingur kartöflunni í munn sér í heilu lagi og tyggur. Viðsmjörið situr í litlum fitudropum á vörunum. Munnur Maríu verður fyllri, brjóst hennar þrýstast út í kjólinn eins og stór epli. Úti heyrist gjálfrið í vatninu. Einhvers staðar tifar klukka. Loftið í bátnum er þungt. Rúm Maríu er eins og skápur inn í þilið. Faðir hennar hefir málað rósir á það, skærar, rauöar rósir. Ábreiðan er bláköflótt, svipuð þeim, sem tiðkast á sveitabæjum..... Tóm augu, heitar kartöflur og fituperlur á vörunum........... Fingur gömlu hjónanna beggja eru bognir og hnýttir. Fingur Maríu eru beinir og sléttir. Hýðið af kartöflunum loðir við þá og verpist. Biti úr kartöflu flýtur ofan á viðsmjörinu í leir- pottinum. Gamli maðurinn treður í pípu sína og réttir mér svo tóbakspung- inn, sem búinn er til úr þurrkaðri svínsblöðru. Svo reykjum við. Kon- urnar fara að taka af borðinu, en ég fer upp á þilfar með gamla manninum. Við setjumst niður, dá- lítið formlega. Ég finn goluna strjúkast um mig aftur. Engið og áin renna saman í eitt. „Jæja, nú förum við á morgun“, segir gamli maðurinn. „Ég þakka þér fyrir mjólkina. Það er oft, að við fáum ekki mjólk, eða þá að bænd- urnir vilja fá of mikið fyrir hana. Það er erfitt líf á bátnum ....“. Orð hans renna út í myrkrið. Röddin er eins og umhverfið í kring um okkur. Mig langar til þess að spyrja hann, hversvegna hann sigli ekki alltaf hér upp eftir,en þá kem- ur María og sezt hjá okkur. Neistar hrökkva og svífa fram hjá okkur um leið og þeir deyja. María rær fram og aftur. Vegna þess gæti hún sýnst óstyrk, en lokuð augun lýsa friði og ró. Gamli maðurinn fer ekki .... „Jæja þá. Ég þakka þér kærlega

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.