Dvöl - 01.04.1940, Qupperneq 43
DVOL
121
Kirkjan með ytirfall§lijolið
Eftir O. Henry
Lakelands er sjaldan getið í aug-
lýsingum um sumarskemmtistaði.
Það er neðarlega í Cumberland-
fjöllunum, við á, sem fellur í
Clinchfljótið. Lakeland er rólegt
þorp — tíu eða tólf hús — og
stendur við einfalda og einmana-
lega járnbrautarlínu. Það er erfitt
að segja, hvort heldur það er járn-
brautin, sem hefir villzt inn í furu-
skóginum og álpazt inn í Lakeland,
eða þá að Lakeland hefir villzt og
loks leitað hælis þarna við járn-
brautarlínuna, í von um að lestin
kæmi og tæki það meö sér heim-
leiðis.
Það er heldur ekki gott að segja,
hvers vegna þorpið var nefnt Lake-
land, því að þar eru engin vötn. Og
sannast að segja er landiö í kring
ekki umtalsins vert.*)
Eagle House stendur í röskrar
mílu fjarlægð frá þorpinu. Það er
myndarlegur skáli með herbergj-
um fyrir gesti, sem vilja njóta
fjallaloftsins án of mikilla út-
gjalda. í Eagle House er allt í un-
aðslegu reiðuleysi, eins og það væri
manns eigin heimili, og húsgögn-
in eru gömul og fornfáleg og laus
við allan nýtízkubrag.
En þú færð hreinlegt herbergi og
góðan og mikinn mat. Furuskógur-
*) Lakeland = vatnsland.
inn og þú sjálfur verður að sjá þér
fyrir öðru. Náttúran hefir séð
staðnum fyrir dálítilli ölkeldu og
sléttum bala, þar sem hægt er að
leika ,,krokket“. Fiðluspil og gítar-
leik, sem þú færð að heyra í dans-
skálanum tvisvar í viku, ber að
þakka Arty.
Dvalargestir Eagle House eru
þeir, sem leita skemmtunar og
ánægju sem nauðsynja. Það er
önnum kafið fólk, sem likja mætti
við klukku, sem þarf að draga
upp í hálfan mánuð, svo hún gangi
í eitt ár. Þar má hitta stúdenta frá
sléttubæjunum, stöku listamann,
eða jarðfræðing niöursokkinn í at-
hugun jarðlaganna í fjöllunum og
hæðunum í kring. Nokkrar kyrr-
látar fjölskyldur dvelja þar sum-
arlangt, og oft dvelja þar einn eða
tveir meðlimir hins margþreytta
safnaðar, sem í Lakeland er al-
mennt kallaður „skólakerlingar".
Spölkorn frá Eagle House var
hlutur, sem í venjulegum skrum-
auglýsingum hefði verið kallaður
„sérstaklega merkilegur". Það var
mylla með yfirfallshjóli, sem þó var
ekki lengur mylla. Með orðum
Josiah Raukin var þetta „eina
kirkjan í Bandaríkjunum, karl
minn, með yfirfallshjóli; og eina
myllna í heiminum með ræðustóli
og pípuorgeli“. Gestirnir í Eagle