Dvöl - 01.04.1940, Side 47

Dvöl - 01.04.1940, Side 47
D VÖL 125 legu heimsókn til héraðsins og varð „faðir Abram“ á ný. Það haust dvöldu fáir gestir í Eagle House. Meðal þeirra var Rose Chester. Ungfrú Chester var frá Atlanta og var þar brúðarmær. Þetta var hennar fyrsta sumarleyfi. Kona verzlunarstjórans hafði eitt sinn dvalið sumarlangt í Lakeland. Henni geðjaðist vel að Rose og hafði hvatt hana til þess að fara þangað í þriggja vikna sumarleyfi. Hún lét henni einnig í té bréf til frú Raukin, sem tók á móti Rose með mikilli ánægju. Ungfrú Chester var fremur veik- byggð. Hún var um tvítugt, fíngerð og föl af mikilli innivist. En eftir vikudvöl í Lakeland hafði hún stór- lega breytzt, svipurinn hýrgast og lifsþróttur vaxið. Þetta var septem- bermánuður og Cumberlandhæð- irnar í sínu fegursta skrúði; haust- rauðir skógar í fjallahlíðum, ilmur í fölnandi lyngi, en svalar nætur kenndu gestunum í Eagle House að meta ábreiður sínar og yfir- klæði að verðugleikum. „Faðir Abram“ og ungfrú Chester urðu góðir vinir. Gamli malarinn hafði fræðst um sögu hennar, og hann kenndi strax samúðar með hinni veikbyggðu og einmana stúlku, sem var að reyna að brjót- ast áfram upp á eigin spýtur. Ungfrú Chester var óvön fjall- lendi. í mörg ár hafði hún átt heima í hinni heitu láglendisborg, Atlanta; og fjölbreytni og glæsi- bragður náttúrunnar í Cumber- landfjöllunum var henni óþrjót- andi ánægja. Hún hafði ákveðið að gleöjast yfir hverju augnabliki, sem hún dveldi á þessum stað. Hún hafði líka nákvæmlega reiknað út kostnað ferðalagsins, og vissi upp á eyri, hve mikið' yrði eftir af hinu takmarkaða sparifé, er hún héldi aftur heim. Ungfrú Chester var heppin, að fá að njóta vinsemdar og félags- skapar gamla malarans. Hann þekkti hverja laut og hæö í fjöll- unum í kring. Með aðstoð hans kynntist hún fljótlega kyrrlátum rjóðrum furuskógarins, tign nakinna fjallatindanna, hressileik morgunloftsins og hinum draum- kennda sorgarblæ kvöldsins. Og hún varð hress í bragöi og lét-t í lund. Á sinn fíngerða og kvenlega hátt gat hún hlegið eins hjartan- lega og „faðir Abram“, þegar hann hló sínum kunna hlátri. Bæði voru bjartsýn að eðlisfari, og kunnu þá list, að horfa framan í heiminn með rólyndi og glaðværð. Dag nokkurn sagði einn af gest- unum ungfrú Chester söguna um hina týndu dóttur „föður Abrams". Hún flýtti sér á brott til „föður Abrams“, þar sem hann sat á sín- um uppáhaldsstað við lækinn. Hann varð dálítið hissa, þegar hún stakk hendinni í lófa hans og horfði framan í hann með tárin í augunum. „Ó, faðir Abram,“ sagði hún, „ég er svo hrygg. Ég vissi ekki um hana litlu dóttur þína fyrr en í dag. Þú

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.