Dvöl - 01.04.1940, Page 54

Dvöl - 01.04.1940, Page 54
132 DVÖL að ganga sér til húðar á mölinni, sárfættur og með gigtarflog i lendum og baki. Guð almáttugur myndi sannarlega hafa orðið sár- fættur og gigtveikur líka af að rölta hérna um mölina dag eftir dag, eins og hann hafði nú orðið að gera þessi tíu, endalausu ár hérna í henni Reykjavík. Og þá var nú svo sem ekki við miklu að búast af honum Magnúsi gamla Sigmundssyni, útslitnum garmi og öreigaræfli. Nei, sei sei, nei, það var nú síður en svo.-------- Magnús gamli sezt niður á kola- poka og starir á Esjuna. Hann getur ekki munað, hvenær hann siðast hefir horft svona hátt. Þarna er þá Hamrahlíð og þarna Hengillinn! Himininn er svo ein- kennilega hlákublár og grænku slær á hnjóta og rinda. Guð minn góður. Vorið er að koma, og þó er dauðinn fyrir dyrum! — Verkstjórinn kallar hryssings- lega álengdar og kemur arkandi í áttina til Magnúsar gamla. „Hvaða bölvað hangs er þetta, maður. Situr hann þá ekki gón- andi þarna mitt í vinnutímanum. Við höfum nú ekki brúk fyrir þess háttar kúnstir hérna, karl minn. Hér er bara annaðhvort eða-----“ „Já, það er víst bara annaðhvort — lífið eða dauðinn,“ segir Magnús gamli eins og við sjálfan sig. „Ha — aaa? — Já, hvað ætti það svo sem annað að vera,“ segir verkstjórinn hálf forviða. „Það eru nú ekki nema tvö hornin á henni veröld. Þú þarft ekki að búast við því ferhyrndu hérna megin heiðar, karl minn! — Það er annars bezt, að þú röltir heim til þín, garmur- inn. Hér er ekkert meira að gera í dag. Og verður víst ekki á næst- unni heldur. Við höfum nóg fólk, og langt fram yfir það, skal ég segja þér.“-------- Magnús gamli er lengi að átta sig. Lífið eða dauðinn. Og að deyja í vorgróandanum. Hvílíkt öfug- mæli! En það var nú samt svo. Börnin voru fyrir löngu flogin úr hreiðrinu. Öllsömul, átta talsins. Þrír efnilegir synir og fimm dætur gjafvaxta. Og fjögur þeirra voru nú gift. Nú voru þau hingað og þangað og höfðu nóg með sig. En gömlu hjónin kúrðu tvö ein eftir í kjallaraholu í Skuggahverfinu. Hún var orðin heilsulaus aumingi, og hann útslitinn og atvinnulaus garmur, sem enginn vildi líta við nema af náð. Hann var heldur ekki orðinn maður til að troða mölina lengur. Hann var rækilega búinn að ganga sér til húðar, sárfættur á sál og líkama. Mölin, bærinn og sveitin, þessi líka þrenningin! Þetta var nú allt líf hans og lán. — Og nú sneri mölin við honum bak- inu eftir trúa og dygga þjónustu í tíu ár. Hin tvö hjúin myndu varla taka honum opnum örmum. Það var heldur ekki við því að búast. Hann var nú eins og hvert annað útslitið amboð, gagnslaust og ger- ónýtt, — eins og útjaskað reipa- slitur, trosnað í báða enda og

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.